Hlutabréf halda áfram að falla Sæunn Gísladóttir skrifar 11. febrúar 2016 16:08 Vísitölur í Bandaríkjunum hafa hækkað það sem af er degi. Vísir/Getty
Hlutabréf í Evrópu hafa fallið verulega í dag. Bréf í Deutsche Bank, sem hríðféll í byrjun viku, hafa lækkað um rúmlega fimm prósent það sem af er degi.BBC greinir frá því að FTSE 100 vísitalan hafi fallið um 83 stig um eftirmiðdaginn. Markaðir í Frankfúrt hafa lækkað um 1,8 prósent og markaðir í París um 2,9 prósent. Hlutabréf í Credit Suisse hafa lækkað um rúmlega átta prósent í dag og hafa hlutabréfin ekki verið lægri í tuttugu og sjö ár. Fjöldi fjárfesta hefur verið að losa sig við bréfin sín í dag. Credit suisse hefur lækkað um rúmlega fjörutíu prósent á árinu. Svo virðist sem smitáhrif séu á Bandaríkjamarkaði þar sem hlutabréf á Wall Street lækkuðu við opnun. S&P 500 og Dow Jones vísitölurnar hafa lækkað um 1,3 prósent í morgunviðskiptum. Það sem af er ári hafa hlutabréf evrópskra banka fallið verulega, eða milli fimmtán til fjörutíu prósent. Markaðir róuðust í gær eftir miklar lækkanir í byrjun viku. Lækkanirnar virðast þó hafa farið af stað á ný í dag.
Mest lesið Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Viðskipti innlent Svikarar nýti sumarfrí til að blekkja fyrirtæki til að millifæra háar upphæðir Viðskipti innlent Ekki flaska á að undirbúa sumarfríið þitt í vinnunni Atvinnulíf Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent EFTA-ríkin gera fríverslunarsamning við Mercusor-ríkin Viðskipti innlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira