Ingvar Jónsson genginn í raðir Sandefjord Tómas Þór Þóraðrson skrifar 27. janúar 2016 09:30 Ingvar í treyju Sandefjord. mynd/heimasíða sandefjord
Ingvar Jónsson, landsliðsmarkvörður í fótbolta, er búinn að ganga frá þriggja ára samningi við norska félagið Sandefjord, en þetta kemur fram á heimasíðu liðsins. Ingvar kemur til Sandefjord frá úrvalsdeildarliðinu Start, en hann var fenginn þangað eftir að slá í gegn í Pepsi-deildinni 2014 þar sem hann vann Íslandsmeistaratitilinn með Stjörnunni og var kjörinn leikmaður ársins. Markvörðurinn var lánaður frá Start niður í B-deildina til Sandnes Ulf á síðustu leiktíð þar sem hann tók við af öðrum íslenskum landsliðsmarkverði, Hannesi Þór Halldórssyni. Njarðvíkingurinn spilaði fimmtán leiki fyrir Sandnes Ulf og hélt fjórum sinnum hreinu. „Við erum að fá metnaðarfullan markvörð sem vill vera hluti af íslenska landsliðinu. Hann er heilsteyptur og góður markvörður,“ segir Lars Bohinen, þjálfari Sandefjord, um Ingvar. Sandefjord féll úr norsku úrvalsdeildinni í haust eftir eins árs dvöl á meðal þeirra bestu. Ingvar Jónsson á fjóra landsleiki að baki fyrir íslenska landsliðið. Hann spilaði sinn fyrsta á móti Belgíu í nóvember 2014, en svo byrjaði hann báða leiki liðsins í Sameinuðu arabísku furstadæmunum fyrr í þessum mánuði.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið McIlroy glaður að vera laus við pólitíkina í golfi Sport Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Körfubolti Sektaður um þrjár milljónir fyrir að kasta flösku í áhorfanda Körfubolti Arnór og Stiven mættust í Íslendingaslag Handbolti Tryggvi fagnaði fjórða Evrópusigrinum í röð Körfubolti Arnar hitti úr öllu og Þorsteinn hamraði á markið Handbolti Arna hélt hreinu og lagði upp sigurmarkið Fótbolti Stærsta tap tímabilsins beið Fram í Sviss Handbolti Fram hirti sigur af Haukum eftir æsispennu Handbolti Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima Enski boltinn Fleiri fréttir Arna hélt hreinu og lagði upp sigurmarkið Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima Graham Potter: Það er allt í lagi með Alexander Isak Mamma hans trúði honum ekki Setja rúma fjóra milljarða í það að losa fótboltavelli við allt gúmmikurlið Barcelona fór á bak við spænska sambandið og sendi Yamal í aðgerð FH-stelpurnar sáu um mörkin í sannfærandi sigri Íslands „Menn beita öllum brögðum“ Er framherji Brentford óvænt að banka á landsliðsdyrnar hjá Brasilíu? Þurfa að borga háar fjárhæðir fyrir bílastæði á HM Liverpool-stjarna vill ekki spila fyrir ítalska landsliðið María valin nýliði ársins: Eins óútreiknanleg og Eyjafjallajökull Missa af landsleik af því að þeir eru ekki bólusettir Gummi Ben fékk hláturskast ársins Nagelsmann um Wirtz: Liðsfélagarnir í Liverpool gætu nú aðeins hjálpað honum Messi laumaðist inn á leikvang Barcelona og lét engan vita Kaldasta fagnið í bransanum orðið að vörumerki Rúmlega þúsund leikmenn til rannsóknar: Liðsfélagi Loga settur í bann Alexandra lagði upp og María fór á kostum í Íslendingaslag Sesko ekki með sjálfstraust og dregur sig úr landsliðshópnum Ingibjörg fagnaði langþráðum sigri Liverpool kvartar í dómarasamtökunum Rekinn úr starfi í annað sinn á þessu ári Maðurinn sem Liverpool leyfði að fara með eitt af mörkum ársins Yamal hefur þurft að þola tvöfalt meiri rasisma en Vinicius Messi um endurkomu til Barcelona: „Ég vona það einn daginn“ „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Mætti sínu gamla liði í fyrsta sinn og skoraði tvö sjálfsmörk Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Sjá meira