Kvennalið Selfoss fær til sín landsliðskonu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2016 21:12 Steinunn Hansdóttir (númer 2) þakkar fyrir landsleik á móti Svartfjallalandi í Laugardalshöllinni. Vísir/Ernir
Lið Selfoss í Olís-deild kvenna í handbolta fékk góðan liðstyrk í dag en landsliðskonan Steinunn Hansdóttir er komin til liðsins frá danska liðinu SönderjyskE. Steinunn var á sínu fyrsta tímabili með SönderjyskE en lék áður með Skandeborg. Sunnlenska segir frá félagsskiptunum í kvöld og er með viðtal við nýjast leikmann Selfossliðsins. „Ég var ekkert að fá mikið að spila í SønderjyskE þannig að ég tók þessa ákvörðun og fæ kannski að spila aðeins meira hérna á Selfossi. Þetta er í fyrsta sinn sem ég spila fyrir íslenskt lið, ég hef ekkert fylgst með íslensku deildinni en ég er bara mjög spennt fyrir að spila á Íslandi og sjá hvernig deildin er,“ sagði Steinunn í samtali við sunnlenska.is. Steinunn er 21 árs gömul og spilar í vinstra horni. Hún hefur verið í kringum landsliðið undanfarið og á að baki 19 mörk í 13 landsleikjum. Steinunn er ættuð frá selfossi eins og kemur fram í frétt um félagsskipti hennar á sunnlenska.is en hefur búið í Danmörku frá fjögurra ára aldri. Selfossliðið er í 7. sæti Olís-deildarinnar með átta sigra í þrettán leikjum en markahæsti leikmaður deildarinnar er hin öfluga Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir sem skoraði 118 mörk í þessum 13 leikjum eða meira en tíu mörk í leik. Hrafnhildur Hanna er núna ekki lengur eina landsliðskonan í Selfossliðinu. Selfoss er á heimavelli í fyrsta leik sínum á nýju ári en á laugardaginn kemur taka Steinunn og nýju liðsfélagar hennar á móti Haukum í Vallaskóla.
Olís-deild kvenna Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira