Ban Ki-moon segir að nú sé nóg komið Guðsteinn Bjarnason skrifar 14. ágúst 2015 07:00 Enn ein fréttin af kynferðisbrotum friðargæslumanna leiddi til afsagnar hans. vísir/epa
Babacar Gaye hefur sagt af sér sem yfirmaður friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna í Mið-Afríkulýðveldinu. Þetta gerði hann eftir að upp komst um enn frekari kynferðisbrot friðargæsluliða gagnvart íbúum landsins. Það var Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sem krafðist þess að Gaye segði af sér. „Ég get ekki lýst því með orðum hve miklum sálarkvölum, reiði og skömm ég hef fyllst við þessar endurteknu fréttir ár eftir ár af kynferðisbrotum og misnotkun af hálfu sveita Sameinuðu þjóðanna,“ sagði Ban við fréttamenn í New York. Fyrr í vikunni skýrðu mannréttindasamtökin Amnesty International frá því að friðargæslumaður á vegum SÞ hefði nauðgað tólf ára stúlku í höfuðborginni Bangui. Áður hefur verið skýrt frá víðtækum kynferðisbrotum friðargæslusveitanna í landinu. Friðargæslusveitir voru sendar til Mið-Afríkulýðveldisins árið 2014 vegna borgarastyrjaldarinnar þar. Vargöldin í landinu jókst í mars 2013 þegar uppreisnarmenn náðu völdum í landinu. Tugþúsundir hafa flúið heimili sín í borgarastyrjöldinni.
Mið-Afríkulýðveldið Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Fleiri fréttir Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Sjá meira