Sjókuldi á Snæfellsnesi Sigríður Jónsdóttir skrifar 25. febrúar 2015 13:30 Kári Viðarsson á mikið hrós skilið fyrir vinnu sína og gríðarlegt hugsjónastarf.
MARHöfundar:Kári Viðarsson og Hallgrímur H. HelgasonMeðhöfundar:Birgir Óskarsson og Freydís BjarnadóttirLeikstjóri: Árni Grétar JóhannssonLeikarar:Freydís Bjarnadóttir og Kári ViðarssonHljóðmynd: Ragnar Ingi HrafnkelssonSviðsmynd: Kári ViðarssonLýsing: Friðþjófur Þorsteinsson og Robert Youngson Á Snæfellsnesi má finna lítið atvinnuleikhús sem hefur vaxið og dafnað á síðustu misserum. Frystiklefinn á Rifi er algjörlega einstakt leikhúsrými sem ber með sér fjölbreytta möguleika en Kári Viðarsson á mikið hrós skilið fyrir vinnu sína og gríðarlegt hugsjónastarf. Sýningar á MAR eru orðnar rétt rúmlega þrjátíu síðan verkið var frumsýnt í desember á síðasta ári og allar líkur eru á að þær verði fleiri enda húsfyllir síðastliðinn laugardag. MAR er tvískipt heimildaleikrit og fjallar í grunninn um tvö sjóslys sem gerast með þrjátíu og fimm ára millibili, annars vegar þegar Elliði SI 1 sökk út af Öndverðarnesi árið 1962 og hins vegar þegar Margrét SH 196 hvarf við strendur Breiðafjarðar árið 1997. Við fylgjumst með ungri konu takast á við dauða fósturföður síns og upplifun loftskeytamannsins á Elliða SI 1. Hlutverk Freydísar er byggt á hennar eigin reynslu við að missa stjúpföður sinn í sjóslysi og sýnir hún mikið hugrekki að takast á við atburðinn á þennan máta. Kári leikur síðan lofskeytamanninn sem berst af öllu afli við íslensku náttúruöflin. Aftur á móti flækist leikurinn aðeins þar sem Freydís leikur einnig unnustu sjómannsins á mismunandi tímapunktum þar sem tilhugalíf þeirra er rakið og verður til þess að söguþráður verksins verður frekar óljós. Hópurinn notast við raunverulegar upptökur af samskiptum loftskeytamannsins á Elliða SI 1 við Júpíter RE 161 þetta örlagaríka febrúarkvöld og rennur manni kalt vatn milli skinns og hörunds við að heyra þessi samskipti. Því miður eru hljóðgæðin á þessum upptökum ekki nægilega góð þannig að einhverjar upplýsingar komast ekki til skila. Árni Grétar notast við ljósaskiptingar til að stökkva á milli atriða og þær verða örlítið fyrirsjáanlegar þegar líða tekur á en líkt og leikurinn verða þessar skiptingar fljótlega blæbrigðalitlar. Sviðshönnunin sem er í höndum Kára heppnast með ágætum og þá sérstaklega stálramminn sem hann byggir um loftskeytamanninn, einskonar pallur sem hangir úr loftinu í keðjum. Þegar líða tekur á sýninguna fer vatn að flæða út úr pípunum en vatnselgurinn myndar virkilega fallega hljóðmynd og fagurfræðilega sterka útkomu. MAR fær mikinn kraft frá því að vera sviðsett í köldum Frystiklefanum á Rifi og er ferðalagið þangað á miðjum vetri mikilvæg áminning um harðneskju íslenskrar náttúru sem má aldrei taka af léttúð. Aftur á móti er dramatíska risinu í verkinu ábótavant og leikurinn tiltölulega flatur þrátt fyrir fallegar senur inn á milli.Niðurstaða: Magnaður efniviður og einstakt leikhúsrými sem vert er að gera sér ferð til að sjá en úrvinnslan ekki nægilega sterk.
Gagnrýni Menning Mest lesið Brúðurin hljóp grátandi út áður en Victoria dansaði við Brooklyn Lífið Aron Can og Erna selja en elska eldhúsbúrið Lífið Tinna Hrafns og Sveinn selja á Laugarásveginum Lífið Kristinn Svavarsson er látinn Tónlist „Mig langar bara að vera upprétt og sterk“ Lífið Löggan byrjar á TikTok með því að gasa Egil og Rikka Lífið Atvinnulaus aumingi trompar dauðakölt Gagnrýni Rifjar upp misgóðar minningar í sölutilkynningunni Lífið Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Lífið Auglýsing Blush sé fyrir neðan allar hellur Lífið Fleiri fréttir Atvinnulaus aumingi trompar dauðakölt Gagnrýni ársins 2025: Jólahelvíti, ómerkilegir þættir og vonbrigði á stóra sviðinu Við þurfum að ræða Sydney Sweeney Móðurmorð í blóðugu jólaboði Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Úr öskunni í eldinn Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Sjá meira