Ráðstefnan Lean Ísland haldin í fjórða sinn 16. febrúar 2015 13:00 Ráðstefnan hefur vaxið ár frá ári og ríkir mikil ánægja með hana hjá stjórnendum fyrirtækja.
Ráðstefnuvikan Lean Ísland 2015 hefst 11. mars og stendur yfir í fjóra daga. Í ár verður áherslan á umbætur í rekstri fyrirtækja og stofnana en þetta er í fjórða sinn sem ráðstefnuvikan er haldin. Lean Ísland dregur nafn sitt af Lean thinking sem á uppruna sinn í aðferðafræði sem Toyota hefur beitt við árangursríka stjórnun bílaframleiðslu sinnar. Lean, sem stundum er nefnt straumlínustjórnun eða stöðugar umbætur, snýst í grófum dráttum um að finna til hvaða aðgerða hægt er að grípa sem skapi mestan ávinning fyrir fyrirtækið og um leið að greina hverju viðskiptavinurinn er raunverulega að óska eftir. Enn fremur snýst Lean um að skoða ferlana og sjá hvar sóun liggur og reyna um leið að minnka hana eða útrýma henni. Aðferðafræðin er á þann hátt nýtt til að byggja upp umbótamenningu á öllum sviðum fyrirtækisins. Mörg íslensk fyrirtæki hafa nú þegar innleitt straumlínustjórnun í rekstri sínum.Ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem vilja skilja hvernig hægt sé að bæta stjórnun og rekstur fyrirtækja, segja þær Lísa Jóhanna Ævarsdóttir (t.v.) og Viktoría Jensdóttir.mynd/GVALean Ísland 2015 samanstendur af eins dags ráðstefnu og námskeiðum í þrjá daga og segja skipuleggjendurnir, þær Lísa Jóhanna Ævarsdóttir, verkefnastjóri hjá Ferðaþjónustu bænda og framkvæmdastjóri Lean Íslands, og Viktoría Jensdóttir, deildarstjóri virðisþróunar Skipta og stjórnarmaður Lean Íslands, að ráðstefnan sé ætluð breiðum hópi, frá forstjórum og framkvæmdastjórum til ýmiss konar sérfræðinga. „Þótt áherslan sé á straumlínustjórnun þá er ráðstefnan í raun ætluð öllum þeim sem vilja skilja hvernig hægt sé að bæta stjórnun og rekstur fyrirtækja. Þannig hentar hún stjórnendum og sérfræðingum úr ólíkum atvinnugreinum sem vilja innleiða bætta stjórnun en vantar réttu umbótatólin til þess,“ segir Lísa. Fjölbreytt námskeið Stóri ráðstefnudagurinn er 12. mars á Hilton Reykjavík Nordica þar sem fjöldi áhugaverðra fyrirlesara úr ólíkum atvinnugreinum heldur erindi. „Við munum bjóða upp á erlenda fyrirlesara sem koma úr ólíkum greinum, einn kemur frá fjarskiptafyrirtæki, annar úr banka og enn annar frá stóru alþjóðlegu framleiðslufyrirtæki. Straumlínustjórnun nýtist nefnilega vel í öllum atvinnugreinum og bakgrunnur fyrirlesara okkar endurspeglar vel þá staðreynd,“ bætir Viktoría við. Mikil áhersla er lögð á að hafa ráðstefnuna hagnýta þannig að ráðstefnugestir geti strax nýtt það sem þeir læra af þátttöku sinni í henni. Dagana fyrir og eftir ráðstefnuna verða haldin nokkur námskeið þar sem kafað verður enn dýpra í straumlínustjórnun. „Dagana 10.-11. mars og 13. mars munu nokkrir erlendir sérfræðingar kafa dýpra í fræðin á nokkrum námskeiðum. Þar ber meðal annars að nefna námskeið um hvernig bæta megi eigin afköst með breyttu hugarfari og á einfaldan hátt. Þá er ánægjulegt að fá tvo reynslubolta frá Goodyear-dekkjaframleiðandanum og Royal Bank of Scotland sem kenna munu straumlínulagaða vöruþróun annars vegar og hins vegar innleiðingu á straumlínustjórnun í þjónustu og skrifstofuumhverfi.“ Að sögn Lísu og Viktoríu eru námskeiðin ætluð ólíkum hópum, byrjendum sem lengra komnum. Því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Öll námskeiðin fara fram á ensku og verða haldin á Hilton Reykjavík Nordica, rétt eins og stóri ráðstefnudagurinn. Samstarfsaðilar ráðstefnuvikunnar Lean Ísland eru m.a. Össur, Icelandair, Azazo, Íslandsbanki, Capacent og Orka náttúrunnar. Allar nánari upplýsingar um Lean Ísland 2015 má finna á www.leanisland.is.Dagskrá Lean Ísland 2015asdfasdfasdfasdf
Mest lesið Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Viðskipti erlent Mörg þúsund nýta enn 2G og 3G sem heyra sögunni til um áramótin Neytendur Olíufélögin hafi átt í samráði án þess að tala saman Neytendur Róbert Aron og Einar Örn taka við rekstri Kolaportsins Viðskipti innlent Sjónvarpsapp Sýnar aðgengilegt í Samsung sjónvörpum Samstarf Þessi í vinnunni sem þykist vita allt og hefur alltaf rétt fyrir sér Atvinnulíf Vísar ásökunum um samráð á bug Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fleiri fréttir Sjónvarpsapp Sýnar aðgengilegt í Samsung sjónvörpum Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Greiðsluáskorun „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Sjá meira
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur