Sköpunarkrafturinn og hamingjan Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 19. janúar 2015 14:00 "Ég hef mikinn áhuga á að varpa ljósi á samband hamingju og sköpunar,“ segir Gunnar Hersveinn. Vísir/Arnþór „
Ég ætla að fjalla aðeins um sköpunargáfuna. Hún kemur við sögu í leitinni að hamingju því hún býr í öllu fólki og kenningar eru um að með því að rækta hana upplifi það meiri hamingju,“ segir Gunnar Hersveinn um efni heimspekikaffisins í Gerðubergi á miðvikudaginn. Hann segir sköpunina ekki endilega þurfa að tengjast list, heldur geti hún nýst við hin ólíkustu verkefni svo sem tilraunir og þekkingarleit. „Með sköpunargáfunni leitum við til dæmis að visku í bókmenntum, við lesum sögu og hún veitir okkur innsýn í mannlegt eðli,“ segir hann og kveðst hafa mikinn áhuga á að varpa ljósi á samband hamingju og sköpunar. Ásamt Gunnari mun Hrefna Guðmundsdóttir félagssálfræðingur leiða umræður um hamingjuna á heimspekikaffinu á miðvikudaginn og reyna að finna þráðinn milli sköpunar og hamingju með hjálp gesta. Mikil aðsókn hefur verið á heimspekikaffið í Gerðubergi að undanförnu. Dagskráin þar hefst klukkan 20.
Menning Mest lesið „Maður getur þakkað íslenskum bókmenntum fyrir H.C. Andersen“ Lífið Eldri menn hlógu þegar hún sótti um vinnu Lífið Maðurinn sem Pink Floyd kveikti í er látinn Lífið Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Lífið Krakkatía vikunnar: Strumparnir, borgarstjórar og tónlist Lífið Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Lífið Nivea og gott dekur yngir þig upp - taktu þátt í leik Lífið kynningar Bieber fékk sér smók í Skagafirði Lífið Valdi hættur að spila í neðri deildunum Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Fleiri fréttir Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira