Það er ekki hægt að kvarta þegar maður fær að syngja 5. janúar 2015 11:00 „Það er reyndar lítið jólafrí því mikið er búið að æfa en það er samt gaman að geta haldið tónleika þegar ég er í fríi frá skólanum.“ „
Ég er með sambland af aríum og sönglögum. Það sem hæst ber er lagaflokkur sem sjaldan er fluttur á Íslandi og er eftir tónskáld sem heitir Argento. Þar eru meðal annars textar eftir Shakespeare. Svo syng ég Gimsteinaaríu Kleópötru og aríu Júlíu úr Rómeó og Júlíu.“ Þannig lýsir hin unga söngkona Valdís Gregory dagskránni í Kaldalóni í kvöld sem hefst klukkan 20. Hún er sem sagt ekkert á láglendinu stelpan þegar hún velur sér verkefni. Um undirleikinn sér Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari. Valdís var að ljúka fyrstu önninni af fjórum í mastersnámi í söng við Chicago College of Performing Arts og fékk hæstu einkunn í öllu. Aðalkennari hennar er Metropolitan-tenórinn Allan Glassman. Spurð hvort hún sé heima í jólafríi núna hlær Valdís og svarar: „Það er reyndar lítið jólafrí því mikið er búið að æfa en það er samt gaman að geta haldið tónleika meðan ég er í fríi frá skólanum. Það er ekki hægt að kvarta þegar maður fær að syngja.“ Valdís hóf klassískt söngnám á unglingsaldri, hafði lært á fiðlu frá sex ára aldri og síðar selló. Jafnframt var hún í Kórskóla Langholtskirkju. Söngkennarar hennar hér á landi hafa verið Signý Sæmundsdóttir, Ingveldur Ýr Jónsdóttir og Þóra Einarsdóttir. Hún lauk bachelor-gráðu með láði frá University of Hartford. Sumarið 2010 stundaði hún nám við Bel Canto Institute í Flórens á Ítalíu. Þar vann hún til verðlauna fyrir tæknilega kunnáttu, efnilega sviðsframkomu, tónlistargáfu, tilfinningu fyrir ítalska tungumálinu og hæfni til að nýta sér stíl og hefðir bel canto-söngstílsins. Með Hartt Opera Theatre hefur Valdís sungið hlutverk Næturdrottningarinnar í Töfraflautu Mozarts. Hún söng hlutverk Donnu Önnu í Don Giovanni eftir Mozart með Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, hefur haldið einsöngstónleika í Selinu á Stokkalæk og Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Einnig hefur hún komið fram sem einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, Söngsveitinni Fílharmóníu, Sönghópnum Spectrum og Hartt Choir.
Menning Mest lesið Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni Lífið „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Lífið Mótefni gegn afmennskun og kúgun Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið Settu tærnar upp í loft og fengu knús Menning Hugmyndir að hámhorfi um páskana Bíó og sjónvarp KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni „Dapur yfir því hvernig fór fyrir honum eftir að hann hætti í pólitíkinni“ Lífið Hundrað skvísur blómstruðu saman Lífið „Það sést ekki á mér að ég sé að upplifa þetta“ Lífið Fleiri fréttir Settu tærnar upp í loft og fengu knús „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira