Dortmund minnkaði forskot Bayern í fimm stig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. desember 2015 18:56 Pierre-Emerick Aubameyang var kátur í leikslok. Vísir/Getty
Borussia Dortmund vann 4-1 heimasigur á tíu mönnum Eintracht Frankfurt í dag og er nú fimm stigum á eftir toppliði Bayern München í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Pierre-Emerick Aubameyang bætti við enn einu markinu en átti að skora fleiri. Dortmund hefur unnið þrjá deildarleiki í röð en það gæti orðið erfitt að vinna upp forskot Bæjara sem tapa afar fáum stigum. Útlitið var þó ekki bjart fyrir liðsmenn Dortmund sem lentu undir í leiknum eftir aðeins sex mínútna leik. Henrikh Mkhitaryan jafnaði metin átján mínútum síðar eftir stoðsendingu frá Pierre-Emerick Aubameyang og Aubameyang leyfði sér að klikka á vítaspyrnu í lok fyrri hálfleiks. Slobodan Medojević hjá Frankfurt hafði þá fengið sitt annað gula spjald í leiknum og Frankfurt var því manni færri allan seinni hálfleikinn. Pierre-Emerick Aubameyang bætti fyrir vítaklúðrið með því að koma Dortmund í 2-1 á 57. mínútu eftir sendingu Shinji Kagawa og fjórum mínútum var staðan orðin 3-1 eftir mark miðvarðarins Mats Hummels. Varamaðurinn Adrián Ramos innsiglaði síðan sigurinn með marki á 86. mínútu. Pierre-Emerick Aubameyang var þarna að skora sitt átjánda deildarmark á tímabilinu en hann er markahæstur í deildinni með þremur mörkum meira en Robert Lewandowski hjá Bayern München.
Þýski boltinn Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Körfubolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Goðsögn fallin frá Enski boltinn Fleiri fréttir Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Sjá meira