Rasmus á leið frá KR Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. nóvember 2015 12:14 Rasmus í leik með KR í sumar. Vísir/Andri Marinó
Rasmus Christiansen er að öllum líkindum á leið frá KR en það staðfesti Bjarni Guðjónsson, þjálfari liðsins, í samtali við Vísi í dag. „Ég tel það mjög ólíklegt [að hann verði áfram í KR],“ sagði Bjarni en Indriði Sigurðsson sneri aftur í KR nú í haust eftir langa dvöl í atvinnumennsku. Bjarni ræddi við Rasmus áður en hann fór í frí í haust og reiknar hann með því að mál hans fái fljótt niðurstöðu. „Hann verður örugglega áfram á Íslandi en það hafa þrjú lið verið að spyrjast fyrir um hann. Tvö þeirra hafa náð samkomulagi við KR,“ en Rasmus hefur verið orðaður við Val, ÍBV og Fjölni.Vil ekki tjá mig um Aron KR-ingar hafa samkvæmt heimildum Vísis áhuga á Aroni Sigurðarsyni, leikmanni Fjölnis, en Bjarni vildi ekki tjá sig um það. „Aron er samningsbundinn Fjölni og ég vil helst ekki tjá mig um leikmenn sem eru á samningi hjá öðrum liðum,“ segir þjálfarinn. Bjarni Guðjónsson.Vísir Fyrrum leikmaður Liverpool á reynslu Emmanuel Henry Gomis Mendy er nú til reynslu hjá KR og lék með liðinu sem bakvörður í sigri þess á Breiðabliki í Bose-bikarnum. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég sá hann spila og hann stóð sig ágætlega,“ sagði Bjarni en framhaldið er óráðið. „Það kom fremur óvænt upp að hann kom til okkar og við ákváðum að slá til. Við höfum ekki verið að leita að leikmönnum enda nokkuð sáttir við hópinn. Mendy verður eitthvað með okkur áfram og við sjáum svo til.“ Þess má geta að Mendy lék með yngri liðum Liverpool á sínum tíma en náði ekki að komast í aðallið félagsins. Hann er 25 ára.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Fótbolti Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Fótbolti Åge Hareide glímir við sjúkdóm Fótbolti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Fótbolti Skrautlegur ferðadagur Fótbolti Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af Fótbolti „Mamma vill bara að ég sé í ballett“ Sport FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Fótbolti Veðbankar telja mun líklegra að Ísland falli úr leik Fótbolti Fleiri fréttir Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira