Atli Guðnason hefur mögulega spilað sinn síðasta leik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. nóvember 2015 18:40 Vísir/Andri Marinó
Atli Guðnason er í ítarlegu viðtali á Fótbolti.net þar sem hann segir að hann sé að íhuga hvort hann eigi að hætta í fótbolta. Atli er aðeins 31 árs gamall en hefur verið allan sinn feril í FH. Árið 2004 var hann lánsmaður í HK og ári síðar í Fjölni. Samningur hans við Hafnarfjarðarfélagið er þó útrunninn. Hann segir að allir möguleikar komi til greina - vera áfram í FH, fara í annað félag, leita út fyrir landsteinana og jafnvel hætta. „Ég ætla bara að sjá hvað býðst, leyfa tímanum aðeins að líða. Ég er ekkert að stressa mig á þessu,“ sagði Atli við Fótbolta.net. Hann segist vera spenntur fyrir þeim möguleika að fara út en hann hefur þó ekki enn átt í viðræðum við erlend félagslið. „Ég hef aldrei gert það og það væri smá ævintýri. Ég hef verið í föstum skorðum í einhver ár og það er allt í boði núna.“ Atli segist ekki hafa mikla trú á því að hann muni spila fyrir annað íslenskt félag en að það, eins og annað, komi í ljós. Hann starfar sem framhaldsskólakennari og getur vel hugsað sér að einbeita sér aðeins að kennslunni á næsta ári. „Ég er orðinn þreyttur á að vera bæði kennar og fótboltamaður. Ég er orðinn þreyttur á að vera nánast aldrei heima hjá mér og bara í vinnu frá 08.00 til 20.00. Svo er ég í námi líka og með fjölskylduna. Það er mikið að gera og ýmislegt sem þarf að velja og hafna.“ Atli ætlar að gera upp hug sinn fyrir áramót en viðtalið við hann má lesa í heild sinni hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Fótbolti Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Fótbolti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Fótbolti Skrautlegur ferðadagur Fótbolti Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af Fótbolti „Mamma vill bara að ég sé í ballett“ Sport FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Fótbolti Veðbankar telja mun líklegra að Ísland falli úr leik Fótbolti Åge Hareide glímir við sjúkdóm Fótbolti Fleiri fréttir Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira