Jón Kalman og Sigurjón Bergþór lesa upp og spjalla Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 21. október 2015 10:15 Jón Kalman lýkur ættarsögu í nýju bókinni. Vísir/Daníel
Rithöfundarnir Jón Kalman Stefánsson og Sigurjón Bergþór Daðason spjalla um nýútkomnar bækur sínar við Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur í Gunnarshúsi annað kvöld, fimmtudag, auk þess að lesa kafla úr þeim. Jón Kalman gefur út hjá Bjarti skáldsöguna Eitthvað á stærð við alheiminn, sem er framhald á bókinni Fiskarnir hafa enga fætur sem kom út árið 2013. Lýkur þar ættarsögunni sem teygir sig frá Norðfirði forðum til Keflavíkur dagsins í dag, með viðkomu á Miðnesheiðinni. Hendingskast heitir skáldsaga Sigurjóns Bergþórs, það er hans fyrsta bók og hún kemur út hjá bókaútgáfunni Veröld. Í henni er sagt frá óvæntum atburðum sem koma róti á líf sögupersónanna. Þetta er annað höfundakvöld haustsins í Gunnarshúsi, húsi Rithöfundasambands Íslands að Dyngjuvegi 8. Það hefst klukkan 20, annað kvöld. Allir eru velkomnir meðan stólar leyfa.Aðgangseyrir er 1.000 krónur og veitingar eru innifaldar.Hægt verður að kaupa hinar nýju bækur á sérstöku kynningarverði og fá þær áritaðar af höfundunum ef áhugi er fyrir.
Bókmenntir Mest lesið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Gagnrýni „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Lífið Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Lífið Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar Lífið Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Lífið Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu Matur Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Lífið Superstore-leikari látinn Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira