Gunnar Nielsen genginn í raðir FH Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. október 2015 13:15 Gunnar Nielsen á blaðamannafundinum í dag ásamt Heimi Guðjónssyni og Jóni Halldóri Rúnarssyni. vísir/HBG
Færeyski landsliðsmarkvörðurinn Gunnar Nielsen er genginn í raðir Íslandsmeistara FH, en hann samdi við liðið til þriggja ára í dag. Gunnar var kynntur til leiks á fréttamannafundi FH í Kaplakrika, en hann yfirgaf Stjörnuna í byrjun vikunnar. Hann sagðist þó hafa áhuga á að spila áfram á Íslandi. Gunnar samdi við þáverandi Íslandsmeistara Stjörnunnar fyrir síðasta tímabil og spilaði 20 af 22 leikjum liðsins. Hann fékk á sig 23 mörk en hélt hreinu í sex leikjum, þar af þremur af síðustu fjórum leikjum Stjörnunnar þegar liðið fór á skrið undir lok tímabilsins og hafnaði að lokum í fjórða sæti. Eftir tímabilið var Færeyingurinn kosinn besti leikmaður Stjörnunnar af leikmönnum liðsins og stjórn.Hvað verður um Róbert Örn Óskarsson?vísir/stefánLeysir Róbert Örn af Gunnar kom til Stjörnunnar frá Motherwell í Skotlandi, en hann fór 2009 til Manchester City og spilaði einn leik í ensku úrvalsdeildinni þegar hann kom inná á móti Arsenal. Hann hefur verið aðalmarkvörður færeyska landsliðsins síðustu fimm ár, en Gunnar stóð vaktina í öllum leikjum Færeyja í undankeppni EM 2016. Þar fékk hann á sig 17 mörk í 10 leikjum, en hélt tvívegis hreinu gegn Grikklandi í fræknum sigurleikjum færeyska landsliðsins. Gunnar Nielsen kemur til með að leysa Róbert Örn Óskarsson af hólmi í marki FH-liðsins. Róbert hefur varið mark FH undanfarin tvö ár og varð Íslandsmeistari með liðinu í sumar. Gunnar er annar leikmaðurinn sem kemur til FH eftir tímabilið, en áður voru Íslandsmeistararnir búnir að semja við Bergsvein Ólafsson, miðvörð Fjölnis.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Fótbolti Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Fótbolti Åge Hareide glímir við sjúkdóm Fótbolti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Fótbolti „Mamma vill bara að ég sé í ballett“ Sport Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af Fótbolti Skrautlegur ferðadagur Fótbolti Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Fótbolti FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Fótbolti Fleiri fréttir Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira