Hún kallaði þetta yfir sig Óttar Guðmundsson skrifar 17. október 2015 07:00 Lögbókin Grágás er merkileg heimild um afstöðu forfeðranna til ýmiss konar afbrota. Í Festarþætti er rætt um hörð viðurlög við nauðgun, sem talin var andstyggilegur glæpur. Frægustu frásögnina um nauðgun er að finna í Grettissögu Ásmundssonar. Grettir synti frá Drangey til að sækja eld. Hann var kaldur og hrakinn eftir sundið og lagði sig og sofnaði. Dóttir bónda og vinnustúlka ákváðu að kíkja á sköpulag Grettis og lyftu af honum brekáninu. Þær undruðust hversu illa hann væri vaxinn niður og hlógu hátt. Grettir vaknaði, kvað vísu og kippti griðkonunni upp í til sín. Hún æpti ógurlega en Grettir kom fram vilja sínum þrátt fyrir það. Hann sleppti stúlkunni lausri og hló hún ekki að Gretti og hans litla lim eftir það. Ekki er þess getið að einhver eftirmál hafi orðið að þessum glæp enda var Grettir margdæmdur siðblindur brotamaður. Sagan lítur reyndar brot Grettis mildum augum enda ögraði stúlkan hetjunni með gaspri sínu og fékk makleg málagjöld. Grettir er ein af dáðustu hetjum Íslendingasagna. Hann talaði í spakmælum og var sterkari en öll steratröll samtímans. Ógæfan elti hann á röndum enda var blóraböggull í hverju máli og Grettir átti aldrei sök á óförum sínum. Æ síðan hafa Íslendingar haft samúð með mönnum eins og Gretti og hampað þeim og réttlætt brot þeirra. Þjóðin kallaði yfir sig siðblindu bankamanna og ófyrirleitni hollenskra smyglara. Væri Grettir uppi nú væri hann fastagestur í helgarútgáfum blaðanna þar sem hann rekti raunir sínar og kvartaði undan samhæfðu einelti samfélagsins. Hann mundi segja: „Ég harma nauðgunina forðum, en hvað gat ég annað gert? Hún kallaði þetta yfir sig.“ Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Óttar Guðmundsson Mest lesið Akranes hefur vaxið hratt – nú er tími til að hlúa að fólkinu Liv Åse Skarstad Skoðun Er íslenskan sjálfsagt mál? Logi Einarsson Skoðun Tala aldrei um annað en vextina Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þegar ráðin eru einföld – en raunveruleikinn ekki Karen Einarsdóttir Skoðun 109 milljarða kostnaður sem fyrirtækin greiða ekki Sigurpáll Ingibergsson Skoðun Er kominn skrekkur í fullorðna fólkið? Steinar Bragi Sigurjónsson Skoðun Stefán Einar og helfarirnar Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Hver ákveður hver tilheyrir – og hvenær? Jasmina Vajzović Skoðun Hvenær verður aðgerðaleysi að refsiverðu broti? Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun 96,7 prósent spila án vandkvæða Sigurður G. Guðjónsson Skoðun