Góður seinni hálfleikur gerði útslagið í sigri Hauka | Úrslit dagsins Kristinn Páll Teitsson skrifar 3. október 2015 18:04 Haukakonur fögnuðu sigri í dag. Vísir/Vilhelm
Haukakonur unnu átta marka sigur á ÍR á útivelli í Olís-deild kvenna í kvöld en eftir að liðin fóru jöfn inn í hálfleik gerði góður seinni hálfleikur útslagið fyrir Haukakonur. Jafnræði var með liðunum framan af og fóru liðin inn í hálfleik í stöðunni 14-14. Þá settu Haukakonur einfaldlega í fluggír og keyrðu yfir ÍR-inga í seinni hálfleik og unnu að lokum átta marka sigur. María Karlsdóttir var atvkæðamest í liði Hauka með níu mörk en Ramune Pekarskyte bætti við sjö mörkum í liði Hauka. Í liði ÍR var Brynhildur Kjartansdóttir markahæst með sjö mörk en næst kom Karen Tinna Demian með sex mörk. Afturelding er enn án sigurs í Olís-deild kvenna eftir 24-25 tap gegn Fjölni á heimavelli í dag en úrslitin voru ekki klár fyrr en undir lok leiksins. Afturelding var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og náði mest þriggja marka forskoti í stöðunni 7-4 en Fjölnisliðinu tókst að svara og ná forskotinu fyrir lok fyrri hálfleiks í stöðunni 10-11. Fjölniskonur virtust ætla að gera út um leikinn í upphafi seinni hálfleiks þegar þær náðu fjögurra marka forskoti en Mosfellskonur gáfust ekki upp og unnu sig aftur inn í leikinn. Fengu þær tækifæri til þess að jafna metin á lokamínútunni en sóknin gekk ekki upp. Díana Kristín Sigmarsdóttir var frábær í Fjölnisliðinu með 10 mörk en Berglind Benediktsdóttir bætti við sex mörkum. Í liði Aftureldingar var það Hekla Ingunn Daðadóttir sem var atkvæðamest með sex mörk en næstar komu Telma Rut Frímannsdóttir og Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir með þrjú mörk.
Olís-deild kvenna Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira