Nýr formaður í Keflavík: Viljum fyrst klára stjórnarkosningu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. október 2015 11:00 Keflavík féll úr Pepsi-deild karla í sumar. Vísir/Andri Marinó
Jón G. Benediktsson, verðandi formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, segir að engin ákvörðun hafi verið tekin í þjálfaramálum félagsins. Jón er einn í framboði til embættis formanns og verður því sjálfkjörinn á aukaaðalfundi sem fer fram á fimmtudag. Þá verður einnig ný stjórn kjörin en sú gamla sagði af sér undir lok tímabilsins í haust. Keflavík féll úr Pepsi-deild karla í ár eftir afar erfitt tímabil. Jón sagði í samtali við Víkurfréttir í morgun að fyrsta verkefni nýrrar stjórnar verði að ráða nýjan þjálfara. Þorvaldur Örlygsson hefur verið orðaður við starfið en hætti á dögunum sem þjálfari HK. Þorvaldur sagði við Vísi að hann útilokaði ekkert um framtíðina og að hann myndi skoða allt sem kæmi upp. Jón segir þó ekki rétt að viðræður séu hafnar við Þorvald eða neinn annan þjálfara um starfið hjá Keflavík. „Allar sögusagnir um þessi mál eru úr lausu lofti gripnar. Við erum prinsipp strákar og viljum klára stjórnarkjörin áður en við hefjum viðræður við mögulega þjálfara,“ sagði Jón í samtali við Vísi í dag. „Við stjórnarmenn höfum hins vegar talað mikið saman og velt öllum mögulegum þjálfurum sem eru á lausu fyrir okkur. Þorvaldur er eðlilega í þeim hópi,“ sagði Jón en Bjarni Jóhannsson, sem á í viðræðum við ÍBV, hefur einnig verið orðaður við starfið. Jón segir að þeir Haukur Ingi Guðnason og Jóhann Birnir Guðmundsson, sem stýrðu Keflavík lengst af í sumar, komi enn til greina. „En það verða engar ákvarðanir teknar um viðræður eða neitt slíkt fyrr en að stjórnarkosningu lokinni.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Fótbolti Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Fótbolti Åge Hareide glímir við sjúkdóm Fótbolti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Fótbolti „Mamma vill bara að ég sé í ballett“ Sport Skrautlegur ferðadagur Fótbolti Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af Fótbolti Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Fótbolti FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Fótbolti Fleiri fréttir Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira