Rooney missir af landsleikjum Englands Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. október 2015 08:45 Rooney fylgist með æfingu samherja sinna í enska landsliðinu í gær. Vísir/Getty
Markahæsti leikmaður enska landsliðsins, Wayne Rooney, verður að öllum líkindum ekki með sínum mönnum í síðustu tveimur leikjum þess í undankeppni EM 2016. England er þegar búið að tryggja sér sæti á EM 2016 í Frakklandi en mætir Eistlandi á morgun og Litháen eftir helgi. Enskir fjölmiðlar telja nánast öruggt að Rooney nái ekki leiknum á morgun vegna meiðsla og að hann ferðist ekki með liðinu til Litháen um helgina. Roy Hodgson, landsliðsþjálfari, mun vera að íhuga að láta Theo Walcott spila stöðu framherja í liðinu í fjarveru Rooney. Walcott átti frábæran leik í sókn Arsenal sem vann 3-0 sigur á Manchester United um síðustu helgi. Rooney hefur misst af æfingum liðsins síðustu daga eftir að hann varð fyrir smávægilegum meiðslum í leiknum gegn Arsenal. Hann skoraði á dögunum sitt 50. landsliðsmark og varð um leið markahæsti leikmaður Englands frá upphafi. Fyrir leikinn á morgun verður Rooney heiðraður af Sir Bobby Charlton, sem átti markametið á undan Rooney.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Golf Ronaldo svaraði Heimi og sagði hann sniðugan Fótbolti Leiðin á HM: Fjögur þúsund manns hurfu sporlaust Fótbolti Sigurmark Glódísar olli sögulegu tapi Arsenal Fótbolti Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Íslenski boltinn Óli Jó segir að Geir hafi rekið hann þrisvar Fótbolti Heimir spurður hvort að enn stafi ógn af Ronaldo Fótbolti Drap Messi-drauminn í fæðingu: „Ekki raunhæft“ Fótbolti Segir Liverpool „fá ekkert“ út úr því að nota Mo Salah svona Enski boltinn Aserar áhugalitlir og völlurinn hálftómur Sport Fleiri fréttir Stefnir Manchester United vegna „kynferðislegs og líkamlegs ofbeldis“ Fantasýn: Bara nítján stigum frá toppnum á Íslandi Segir Liverpool „fá ekkert“ út úr því að nota Mo Salah svona Fyrrum United-maður sakaður um að hrækja á stuðningsmenn Úlfarnir komnir með nýjan þjálfara „Ráðafólk fótboltans verður að hlusta á áhyggjur kvenna“ Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima „Menn beita öllum brögðum“ Er framherji Brentford óvænt að banka á landsliðsdyrnar hjá Brasilíu? Nagelsmann um Wirtz: Liðsfélagarnir í Liverpool gætu nú aðeins hjálpað honum Kaldasta fagnið í bransanum orðið að vörumerki Liverpool kvartar í dómarasamtökunum „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Mætti sínu gamla liði í fyrsta sinn og skoraði tvö sjálfsmörk Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Sanngjarn heimasigur Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool Sjá meira