Einar Orri í bann fyrir tíu gul spjöld | Oliver ekki með gegn ÍBV Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. september 2015 11:00 Einar Orri er duglegur að safna spjöldum. vísir/arnþór
Einar Orri Einarsson, leikmaður Keflavíkur í Pepsi-deild karla í fótbolta, verður í banni þegar liðið mætir Stjörnunni á Samsung-vellinum á laugardaginn í 21. umferð deildarinnar. Einar Orri fékk sitt tíunda gula spjald þegar Keflavík tapaði, 4-0, gegn ÍA í síðustu umferð, en Keflvíkingar eru nú þegar fallnir niður í 1. deild. Þó tíu gul spjöld sé vissulega mikill fjöldi í 22 leikja móti er þetta ekki persónulegt met hjá þessum mikla nagla sem kallar ekki allt ömmu sína á fótboltavellinum. Einar Orri fékk nefnilega ellefu gul spjöld á síðustu leiktíð, þar af tvö gul spjöld í sama leiknum tvisvar sinnum sem leiddi til brottvísunar. Við það bætti hann svo tveimur gulum spjöld í Borgunarbikarnum en í heildina voru þau þrettán á síðasta sumri. Einar Orri verður ekki með Keflavík sem fyrr segir í næsta leik en getur jafnað eigið met fái hann gult spjald í lokaleiknum gegn Leikni á heimavelli.Oliver í leikbann Breiðablik á enn veika von á Íslandsmeistaratitlinum, en til þess að svo verði þarf liðið að vinna næstu tvo leiki sína og treysta á að FH misstígi sig. Breiðablik mætir ÍBV á laugardaginn, en þar verður liðið án miðjumannsins Olivers Sigurjónssonar sem hefur verið einn af betri leikmönnum Íslandsmótsins. Hann var úrskurðaður í bann fyrir fjögur gul spjöld. Aðrir sem voru úrskurðaðir í leikbann af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ í gær eru: Kristján Flóki Finnbogason, FH, Frans Elvarsson, Keflavík, Vladimir Tufegdzic, Víkingi, Arnþór I. Kristinsson, Víkingi, Stefán Logi Magnússon, KR og Gunnar Már Guðmundsson, Fjölni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Fótbolti Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Fótbolti Åge Hareide glímir við sjúkdóm Fótbolti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Fótbolti „Mamma vill bara að ég sé í ballett“ Sport Skrautlegur ferðadagur Fótbolti Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af Fótbolti Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Fótbolti FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Fótbolti Fleiri fréttir Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira