KR-ingar sáu aldrei til sólar á Lerkendal Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. júlí 2015 14:28 Gary Martin lék allan leikinn fyrir KR í dag. Vísir/Valli
KR átti aldrei möguleika gegn Rosenborg í seinni leik liðanna í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í Þrándheimi í dag. Rosenborg vann fyrri leikinn á Alvogen-vellinum, 0-1, með marki Pål André Helland úr vítaspyrnu og leikmenn norska liðsins mættu ákveðnir til leiks á Lerkendal-vellinum í dag. Fredrik Midtsjø kom Rosenborg yfir strax á 4. mínútu og aðeins þremur mínútum síðar skoraði Helland annað mark toppliðs norsku úrvalsdeildarinnar. Það var svo gamli FH-ingurinn, Alexander Søderlund sem kláraði dæmið endanlega þegar hann kom Rosenborg í 3-0 á 18. mínútu. Eftir þetta var aldrei spurning hvernig leikurinn myndi fara. Leikmenn Rosenborg létu þó þessi þrjú mörk nægja og unnu að lokum öruggan sigur og eru komnir áfram í 3. umferðina þar sem þeir mæta Debrecen frá Ungverjalandi. Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn í vörn Rosenborg en hann hefur verið fastamaður í liðinu á þessu tímabili. André Hansen, sem lék með KR seinni hluta sumars 2009, stóð allan tímann milli stanganna hjá Rosenborg en Søderlund fór af velli á 79. mínútu. KR mætir Breiðabliki í næsta leik sínum í Pepsi-deildinni á mánudaginn. KR er í efsta sæti deildarinnar með 26 stig.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Goðsögn fallin frá Enski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport „Ég elska peninga“ Sport Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Fleiri fréttir United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Sjá meira