Suðurlandsslagurinn fór í vító í fyrra en hvað gerist í kvöld? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2015 08:00 Komast Selfoss og Stjarnan áfram í bikarnum í kvöld? Vísir/Pjetur
Fylkiskonur komust í gærkvöldi fyrst liða áfram í undanúrslit Borgunarbikars kvenna í fótbolta og í kvöld bætast tvö lið í hópinn þegar tveir leikir fara fram í átta liða úrslitum keppninnar. Fyrri leikur kvöldsins er Suðurlandsslagur ÍBV og Selfoss á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum sem hefst klukkan 17.30 en hálftíma síðast hefst leikur Íslands- og bikarmeistara Stjörnunnar á móti Þór/KA á Samsung-vellinum í Garðabæ. ÍBV og Selfoss mættust einnig í átta liða úrslitum bikarsins í fyrra en þó fór leikurinn fram á heimavelli Selfossliðsins. Selfoss hafði þá betur eftir 4-2 sigur í vítakeppni þar sem markvörður Selfoss varði tvær síðustu vítaspyrnur Eyjakvenna. Selfoss vann Fylki í undanúrslitunum og fór alla leið í bikarúrslitaleikinn í fyrsta sinn í sögu félagsins en ÍBV-liðið hefur ekki komist í undanúrslit bikarsins í fimm ár. Liðin mættust á Selfossi á maí og þar tryggði Hrafnhildur Hauksdóttir Selfossliðinu 3-2 sigur með marki á lokamínútu leiksins. Stjörnukonur hafa ekki tapað bikarleik í tvö ár eða síðan að þær mættu liði Þór/KA síðast í undanúrslitum bikarsins 2013. Þór/KA vann þá 1-0 sigur í Garðabænum eftir sigurmark frá Söndru Maríu Jessen. Stjörnuliðið hefur unnið fimm bikarleiki í röð síðan en nú mæta þar aftur norðankonum í kvöld. Þór/KA var ekki mikil fyrirstaða í deildarleik liðanna á dögunum þegar Stjarnan vann 5-1 sigur á sama stað. Nú er að sjá hvort mótstaðan verði eitthvað meira í kvöld.
Íslenski boltinn Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug Körfubolti „Ég skulda tannlækninum afsökunarbeiðni“ Sport Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Fótbolti „Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum með augnaráð sem hefði getað drepið“ Fótbolti Mikil spenna í Færeyjum enda HM-sætið enn möguleiki Fótbolti „Ég var bara millimetrum frá því að lamast“ Sport Notaði eiginmanninn sem héra og vann sitt fyrsta maraþon Sport Mark Cuban mættur aftur Körfubolti Sögulegt bardagakvöld á Ásbrú: „MMA er ekki ólöglegt“ Sport Fleiri fréttir Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira