Götze og Van der Vaart mestu vonbrigðin í þýsku deildinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. júní 2015 23:30 Van der Vaart fann sig ekki hjá Hamburg í vetur. vísir/getty
Mario Götze og Rafael van der Vaart ollu mestum vonbrigðum í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta á síðasta tímabili að mati leikmanna deildarinnar. Tímaritið Kicker stóð fyrir valinu eins og undanfarin ár. Alls tóku 183 leikmenn þátt í valinu en að þeirra mati olli Van der Vaart mestum vonbrigðum en Götze var í 2. sæti. Hlutskipti þeirra var ólíkt í vetur. Van der Vaart og félagar í Hamburg voru í tómum vandræðum og rétt náðu að bjarga sér frá falli með sigri á Karlsruher í umspilsleikjum. Hinn 32 ára gamli Van der Vaart skoraði fjögur mörk og gaf eina stoðsendingu í 24 leikjum á tímabilinu. Götze var hins vegar hluti af meistaraliði Bayern München en þessi helsta vonarstjarna Þýskalands lék alla leiki Bayern í deildinni nema tvö, skoraði níu mörk og lagði fjögur upp til viðbótar. Kevin-Prince Boateng, leikmaður Schalke 04, endaði í 3. sæti á listanum yfir vonbrigðaleikmenn tímabilsins.Götze varð þýskur meistari með Bayern annað árið í röð.vísir/getty
Þýski boltinn Mest lesið Vann hálft maraþon, fæddi barn og varð svo meistari í heilu maraþoni Sport Elísa langfyrst fyrir Magnús Mána: „Þessi dagur er fyrir hann“ Sport Reykjavíkurmaraþonið í beinni á Vísi Sport Magnaður sigur Dags í Vestratreyju: „Núna er bara stefnan sett á ÓL“ Sport Svekktur Íslandsmeistari: „Þetta var rosalega erfitt hlaup“ Sport Skelfileg mistök City og fullkomin byrjun Spurs Enski boltinn Tilfinningaþrungin stund þegar Magnús Máni kom í mark Sport Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Fótbolti Hjörvar fékk treyju með kveðju frá De Gea í beinni Fótbolti Öruggur sigur Arsenal á nýliðunum Enski boltinn Fleiri fréttir Guðlaugur Victor til Danmerkur á ný Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Keflvíkingar létu mörkunum rigna gegn Völsungi Sjálfsmark í blálokin bjargaði Börsungum Þórsarar á toppinn Orðinn langþreyttur á glímunni við Útlendingastofnun Eze í treyju númer tíu og byrjar á stórleik við Liverpool Þrír leikir í enska: Draumabyrjun Outtara en gömlu félagarnir unnu líka Öruggur sigur Arsenal á nýliðunum Þróttur fær tvo tíma á toppnum og Fylkir úr fallsæti Ronaldo þarf enn að bíða eftir titli þrátt fyrir tímamótamark Hjörvar fékk treyju með kveðju frá De Gea í beinni Skelfileg mistök City og fullkomin byrjun Spurs Valgeir fékk að spila og lagði strax upp í fyrsta sigrinum Sjáðu „fólkið frá þessum stað“ fagna í alvöru gæsahúðarmyndbandi Aurier í bann vegna lifrarbólgu Myndaveisla frá sögulegri stund Vestra Sjáðu markaveisluna hjá Chelsea í Austur-Lundúnum „Greenwood fékk annað tækifæri en ekki sonur minn“ Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ „Það er æfing á morgun“ „Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Chelsea svaraði með fimm mörkum og pressan á Potter eykst Uppgjörið: Breiðablik - Tindastóll 5-0 | Blikar fóru illa með laskaða Stóla Kane með þrennu er Bayern valtaði yfir Leipzig Framlengir við City: „Ég elska Manchester“ Palmer meiddist í upphitun og ekki með gegn West Ham Sjá meira