Sigurður Einarsson kominn á Kvíabryggju Frosti Logason skrifar 9. apríl 2015 08:58 Sigurður Einarsson er kominn vestur í opið úrræði fangelsismálastofnunnar.
Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, sem hóf afplánun í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg þann 29. apríl síðastliðinn, vegna 4 ára dóms sem hann fékk í Al Thani málinu, er nú kominn vestur á Kvíabryggju. Þar hittir hann fyrir tvo af þremur félögum sínum úr gamla Kaupþings banka en Ólafur Ólafsson og Hreiðar Már hafa báðir nú þegar komið sér fyrir í opna fangelsinu fyrir vestan. Líkt og fram hefur komið hefur nokkur umræða verið um það hvort sanngjarnt sé, þá gagnvart öðrum föngum, að yfirmenn Kaupþings sem dæmdir voru vegna aðildar sinnar að Al-Thani-málinu fari beint í Kvíabryggju. Einnig hefur Vísir heimildir fyrir því að viss óánægja ríki með að ákveðnir fangar hafi fengið styttri refsingu en til stóð, eingöngu svo hægt væri að rýma fyrir Kaupþingsmönnum á Kvíabryggju. Fram hefur komið að Sigurður Einarsson er afar ósáttur við dóminn og telur hann ekki halda vatni. Þetta kom meðal annars fram í ítarlegu viðtali við Vísi, sem hann veitti daginn eftir að dómur í hæstarétti féll.
Harmageddon Mest lesið Vinsælasta söngkona Póllands á Íslandi Harmageddon Gera á torgum það sem nasistar hefðu reynt að fela Harmageddon Miðasalan á Eistnaflug er hafin. Harmageddon Sannleikurinn: Forsetinn notaði orðið samstaða 17 sinnum í ávarpi sínu Harmageddon Vala Grand trúlofuð á ný Harmageddon Gísli Marteinn vill opin prófkjör Harmageddon Lou Bega eða Lou Reed? Harmageddon Daft Punk koma fram á Grammy verðlaununum á næsta ári Harmageddon Of Monsters And Men eru byrjuð að vinna að nýju efni Harmageddon Púlsinn 18.ágúst 2014 Harmageddon