Margir veiðimenn sem fá ekki hreindýr Karl Lúðvíksson skrifar 25. febrúar 2015 23:01
Nú er úthlutun veiðileyfa á hreindýr lokið og það eru margir veiðimenn svekktir yfir því að fá ekki dýr og auðvitað aðrir sem fagna því að fá dýr. Dregið var úr innsendum umsóknum þann 21. febrúar og heildarfjöldi hreindýra sem má veiða á þessu ári er 1.412. Gildar umsóknir sem bárust voru 3.636 og af þeim fengu 1.336 úthlutað dýri í fyrstu umferð. Það eru því um 2.200 umsóknir sem ekki fengu leyfi. Það sem síðan á eftir að gerast er að ekki allir halda leyfinu og skila því inn. Þá eiga þeir sem eru rétt neðar í röðinni smá möguleika á að komast upp og ná dýri. Aðrir eru mun neðar á listanum og möguleikinn þeirra á að fá dýr þetta árið sáralítill eða engin. Ágætur kunningi undirritaðs deildi vonbrigðum sínum á Fésbók þegar hann fékk ekki úthlutað dýri. Af virðingu við veiðimanninn deilum við ekki nafninu en aftur á móti ætlum við að sýna ykkur hvernig gott svekkelsi lýtur út á prenti en það er einhvern veginn svona:"Því miður fékkst þú ekki úthlutað dýri í fyrstu tilraun. Af þeim sem sóttu um hreintarfi á svæði 1 varst þú númer 272 en kvótinn var 98 dýr. Þetta þýðir að 173 eru á undan þér í biðröðinni. Athugið að hér er ekki búið að taka tillit til fimm skipta reglunnar þannig að mögulega verða einhverjir teknir fram fyrir biðröðina."
Stangveiði Mest lesið Regnbogasilungur að veiðast víða á vestfjörðum Veiði Nokkrir hnútar fyrir veiðina Veiði Veiðin 2012: Aðeins 12 af 38 laxveiðiám með 100 laxa á stöng Veiði Allt um veiðihnúta Veiði Bræður börðust við maríulaxana á sama tíma! Veiði Elliðavatn kraumaði í morgun Veiði Veiði hefst í Þingvallavatni 20. apríl Veiði Góð rjúpnaveiði á heiðum norðanlands Veiði Lax eða sjóbirtingur? Veiði Hátt í 500 fiskar komnir á land úr Köldukvísl Veiði