Skagamenn kaupa Úrslit.net Atli Ísleifsson og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 27. febrúar 2015 21:44 Vefsíðan hefur verið auglýst til sölu undanfarnar vikur.
Úrslitaþjónustusíðan Úrslit.net sem starfrækt hefur verið undanfarin þrjú sumur hefur fengið nýja eigendur. Bræðurnir Arnar Daði Arnasson og Ragnar Miguel Herreos, stofnendur síðunnar, hafa selt hana þremur Skagastrákum. Nýir eigendur eru Snorri Kristleifsson, Björn Þór Björnsson og Jóhannes Þorkelsson. „Þeir Arnar og Ragnar skila góðu búi. Þetta er umfangsmesta úrslitaþjónustan fyrir íslenska knattspyrnu og við ætlum okkur að halda áfram því góða starfi sem hefur verið sinnt af fyrrum eigendum í að koma úrslitum til skila.“ Vefurinn hefur undanfarin ár þjónað bæði fjölmiðlum og íþróttaáhugafólki þar sem það hefur getað fylgst með stöðunni í leikjum í svo til öllum deildum karla- og kvennafótbolta. Snorri segir að nýir eigendur ætli sér að þróa vefinn áfram. „Við ætlum okkur að gera síðuna snjallsímavænni. Við stefnum á að þetta verði klárt í sumar, fyrir fyrstu umferðina í Pepsí-deildinni.“ Snorri vill ekkert gefa upp um kaupverð. „Ég ætla ekkert að tjá mig um það. Þetta var sanngjart verð fyrir báða aðila.“Litla barnið okkar „Þetta er búið að vera heljarinnar ævintýri,“ segir Arnar Darri í samtali við Vísi. Hann segir þá bræðurna vera búna að leggja mikla vinnu í vefinn undanfarin þrjú ár. „Verkefni sem fáir höfðu trú á í fyrstu,“ sagði hann á Twitter fyrr í kvöld en gengur stoltur frá borði. Hann segir að vefurinn hafi tekið mikinn tíma frá sér og yfir sumartímann hafi hann verið vakinn og sofinn yfir vefnum. Arnar Darri vill ekkert gefa uppi um kaupverðið en segir það þó ekki samanburðarhæft við þann tíma sem þeir bræður hafi lagt í vefinn undanfarin ár.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira