Sigurður Egill skaut Valsmönnum í úrslitaleikinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. febrúar 2015 20:35 Sigurður Egill Lárusson var hetja Valsmanna í kvöld. vísir/stefán
Valur er kominn í úrslit Reykjavíkurmótsins í fótbolta eftir 1-0 sigur á Fjölni í fyrri undanúrslitaleiknum í Egilshöllinni í kvöld. Eina mark leiksins skoraði Sigurður Egill Lárusson á 33. mínútu. Hann fékk þá snyrtilega sendingu inn fyrir vörnina frá Hauki Ásberg Hilmarssyni, lék auðveldlega á Steinar Örn Gunnarsson í markinu og kom boltanum í netið. Skömmu síðar var Sigurður Egill aftur kominn í dauðafæri upp við mark Fjölnis en þá sá Steinar við honum. Fjölnismenn voru meira með boltann í seinni hálfleik og voru óheppnir að jafna ekki metin snemma í seinni hálfleiknum þegar Þórður Steinar Hreiðarsson varði skot Ægis Jarls Jónssonar á línu. Hinum megin voru Valsmenn svo hársbreidd frá því að tvöfalda forskotið en þá varði Guðmundur Þór Júlíusson skalla Hlíðarendapilta úr teignum á línu. Fleiri mörk voru ekki skoruð og spilar Valur til úrslita á mánudagskvöldið en Fjölnir, sem vann alla þrjá leiki sína í riðlinum, er úr leik. Valur mætir annaðhvort Leikni eða KR í úrslitum, en þau mætast klukkan 20.35.
Íslenski boltinn Mest lesið Allir leikmenn ÍR hættir á einu bretti Fótbolti Veittist að sautján ára mótherja sínum og hreytti í hann fúkyrðum Rafíþróttir Evrópa marði Ryder-bikarinn á dramatískan hátt Golf Ekki búið að ræða við mögulega eftirmenn Amorim Fótbolti Þrefaldur heimsmeistari í slagsmálum á kebabstað Sport „Ef menn trúa því getum við farið ansi langt“ Fótbolti „Strætó númer 15 stoppar beint fyrir utan KR-völlinn“ Fótbolti Sjáðu endurkomusigur Arsenal og fyrsta mark Watkins Fótbolti „Til að vera með í einhverri baráttu þurfum við að sýna betri frammistöðu“ Fótbolti „Strákarnir voru alltaf að stríða mér af því ég var ekki búinn að skora“ Fótbolti Fleiri fréttir Slæm byrjun Chelsea skilaði Bayern sigri Ekki búið að ræða við mögulega eftirmenn Amorim Sjáðu endurkomusigur Arsenal og fyrsta mark Watkins Allir leikmenn ÍR hættir á einu bretti „Til að vera með í einhverri baráttu þurfum við að sýna betri frammistöðu“ „Ef menn trúa því getum við farið ansi langt“ „Strákarnir voru alltaf að stríða mér af því ég var ekki búinn að skora“ „Strætó númer 15 stoppar beint fyrir utan KR-völlinn“ Uppgjörið: Fram - Valur 2-0 | Titildraumar Vals að verða að engu „Við þurfum að horfa inn á við“ María skorað þriðjung marka Linköping í deildinni Börsungar á toppinn Fiorentina enn án sigurs eftir jafntefli í Toskana-slagnum Uppgjörið: Afturelding - KA 3-2 | Heimamenn sluppu með sigurinn Dramatík í uppbótartímanum Villa kláraði dæmið í byrjun seinni hálfleiks Uppgjörið: Vestri - ÍBV 0-5 | Enn syrtir í álinn hjá Vestra Gunnar Heiðar hættur með Njarðvík Sandra María með tvö mörk annan leikinn í röð Ólafur aðstoðar Þorstein með landsliðið „Hvernig stendur á því að hann er enn í starfi?“ Aðeins sá sjötti til að skora tvö sjálfmörk í einum leik Slot varpaði sökinni á Frimpong Nik hættir með Breiðablik og tekur við Kristianstad Sjáðu allt það helsta úr enska boltanum í gær Sveinn Aron skoraði beint úr aukaspyrnu „Sætið tryggt og nú er að klára forsetabikarinn“ Sjáðu mörkin úr Bestu-deild karla í kvöld Uppgjörið: Keflavík - HK 4-0 | Keflavík í Bestu deildina Sunderland á fljúgandi siglingu upp töfluna Sjá meira