Fram endurheimti toppsætið | Fylki náði í stig gegn Gróttu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. janúar 2015 18:23 Thea Imani skoraði sex mörk fyrir Fylki gegn Gróttu í dag. vísir/valli
Fylkir náði óvæntu jafntefli, 20-20, gegn toppliði Gróttu í Olís-deild kvenna í handbolta. Gróttukonur leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 9-12, en Árbæjarliðið vann seinni hálfleikinn 11-8 og nældi sér í gott stig. Patrícia Szölösi og Thea Imani Sturludóttir skoruðu sex mörk hvor fyrir Fylki en Anna Úrslúla Guðmundsdóttir var markahæst í liði Gróttu með fimm mörk.Mörk Fylkis: Thea Imani Sturludóttir 6, Patríca Szölösi 6, Sigrún Birna Arnardóttir 4, Hafdís Shizuka Iura 2, Rebekka Friðriksdóttir 1, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 1.Mörk Gróttu: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 5, Karólína Bæhrenz Lárudóttir 4, Laufey Ásta Guðmundsdóttir 3, Anett Köbli 2, Eva Björk Davíðsdóttir 2, Guðný Hjaltadóttir 2, Lovísa Thompson 1, Sunna María Einarsdóttir 1. Fram gerði góða ferð til Vestmannaeyja og vann öruggan sigur á ÍBV, 18-26. Staðan var 9-14 í hálfleik en Fram náði mest níu marka forystu í seinni hálfleik. Ragnheiður Júlíusdóttir og Elísabet Gunnarsdóttir voru markahæstar í liði Fram með sex mörk hvor en með sigrinum endurheimti liðið toppsæti deildarinnar. Ester Óskarsdóttir skoraði níu mörk fyrir ÍBV en Eyjakonur hafa nú tapað þremur leikjum í röð og fjarlægjast efstu liðin enn frekar.Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 9, Vera Lopes 4, Drífa Þorvaldsdóttir 2, Telma Amado 1, Díana Dögg Magnúsdóttir 1.Mörk Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 6, Elísabet Gunnarsdóttir 6, Marthe Sördal 4, Steinunn Björnsdóttir 3, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 2, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 2, Hulda Dagsdóttir 2, Hekla Rún Ámundadóttir 1. Sólveig Lára Kjærnested skoraði sjö mörk þegar Stjarnan vann átta marka sigur, 30-22, á botnliði ÍR í TM-höllinni. Þórhildur Gunnarsdóttir var næstmarkahæst í Stjörnuliðinu með fimm mörk en Garðbæingar eru í 3. sætinu, tveimur stigum á eftir Fram og Gróttu.Mörk Stjörnunnar: Sólveig Lára Kjærnested 7, Þórhildur Gunnarsdóttir 5, Guðrún Erla Bjarnadóttir 3, Helena Rut Örvarsdóttir 3, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 3, Stefanía Theodórsdóttir 2, Arna Björk Almarsdóttir 2, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 2, Arna Dýrfjörð 2 og Sandra Sif Sigurjónsdóttir 1.Mörk ÍR: Brynhildur Bergmann Kjartansdóttir 12, Sigrún Ása Ásgrímsdóttir 4, Sif Maríudóttir 2, Jóhanna Björk Viktorsdóttir 2, Karen Tinna Demian 1, og Anna Margrét Sigurðardóttir 1. Haukar jöfnuðu ÍBV að stigum í 4.-5. sæti deildarinnar með fjögurra marka sigri, 27-23, á Selfossi fyrir sunnan. Marija Gedroit fór á kostum í liði Hafnfirðinga og skoraði 10 mörk. Karen Helga Díönudóttir kom næst með sex mörk.Mörk Selfoss: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 6, Carmen Palamariu 6, Harpa Sólveig Brynjarsdóttir 4, Kristín Steinþórsdóttir 2, Perla Rut Albertsdóttir 1, Hildur Öder Einarsdóttir 1.Mörk Hauka: Marja Gedroit 10, Karen Helga Díönudóttir 6, Viktoría Valdimarsdóttir 3, Ásta Björk Agnarsdóttir 2, Gunnhildur Pétursdóttir 2, Ragnheiður Ragnarsdóttir 2, Stefanía Sigurjónsdóttir 1, Ragnhildur Sveinsdóttir 1.
Olís-deild kvenna Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira