Atli og Sigrún Ella gáfu flestar stoðsendingar í sumar Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. desember 2014 17:30 Vísir
Atli Guðnason úr FH og Sigrún Ella Einarsdóttir úr Stjörnunni áttu flestar stoðsendingar í Pepsi-deildum karla og kvenna á árinu 2014. Þetta kemur fram í bókinni Íslensk knattspyrna 2014 eftir Víði Sigurðsson sem var kynnt á fréttamannafundi í dag, þar sem þau fengu verðlaun fyrir frammistöðu sína frá Bókaútgáfunni Tindi. Þetta er í annað sinn á þremur árum sem Atli á flestar stoðsendingar en þær voru 11 talsins hjá honum í deildinni í ár. Sigrún Ella hlýtur hinsvegar þessa viðurkenningu í fyrsta skipti en hún lagði upp 11 mörk fyrir Íslandsmeistara Stjörnunnar. FH átti tvo efstu menn í Pepsi-deild karla því Ólafur Páll Snorrason varð annar með 10 stoðsendingar og þriðji varð síðan Ragnar Leósson úr Fjölni sem einnig átti 10 sendingar sem gáfu mörk. Í Pepsi-deild kvenna varð Shaneka Gordon úr ÍBV í öðru sæti, einnig með 11 stoðsendingar. Í þriðja sæti varð síðan Harpa Þorsteinsdóttir úr Stjörnunni, markadrottning deildarinnar 2014, en hún áttu líka 11 stoðsendingar eins og þær Sigrún og Shaneka en í fleiri leikjum. Bókaútgáfan Tindur veitti jafnframt árleg heiðursverðlaun sín og þau hlaut að þessu sinni knattspyrnudeild Leiknis í Reykjavík fyrir frábæran árangur liðsins sem varð sigurvegari í 1. deild karla og leikur í fyrsta skipti í efstu deild á næsta keppnistímabili.
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Fótbolti „Sorgmæddur en stoltur“ Fótbolti Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Handbolti Rosaleg dagskrá Man. City að hefjast Enski boltinn Hrósar Heimi og vill að hann hermi eftir Arsenal Fótbolti Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Körfubolti Liverpool tapaði aftur í Tyrklandi Fótbolti Bæjarar gengu frá Atalanta Fótbolti Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Íslenski boltinn West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni Enski boltinn Fleiri fréttir Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Sjá meira