Skothelt teppi fyrir bandarísk skólabörn Kjartan Atli Kjartansson skrifar 11. júní 2014 09:45 Teppið á að verja börn frá skotárásum í skóla.
Fyrirtækið ProTecht hefur sett skothelt teppi fyrir bandarísk börn á markað. Teppið á að verja skólabörn fyrir skotárásum. Teppið á líka að virka sem vörn fyrir börnin þegar óveður geysa og þungir hlutir geta fallið á þau. Teppið er kallað Lífvörðurinn, eða Bodyguard á ensku. ProTecht hefur nú sent frá sér myndband sem kynnir vöruna og sýnir það börn á hefðbundnum skóladegi. Síðan eru börnin sýnd í aðstæðum þar sem þau þurfa að nota teppið til að verja sig. „...Foreldrarnir eru í vinnunni og börnin eru að fá sér sæti í skólastofunni. Þetta er bara venjulegur dagur, þar til nú,“ segir í myndbandinu.Börnum á að reynast auðvelt að setja teppið yfir sig.Þar kemur einnig fram að teppið er gert úr sama efni og skotheld vesti bandarískra hermanna eru úr. Einnig segir að teppið á að verja börn frá kúlum úr 90 prósent af byssum sem notaðar hafa verið í skotárásum í bandarískum skólum á undanförnum árum. Teppið kostar um 120 þúsund krónur stykkið, en skólum verður boðinn ríflegur magnafsláttur að sögn ProTech.
Mest lesið Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Viðskipti innlent Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran Viðskipti innlent Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Viðskipti innlent Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Viðskipti innlent „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Viðskipti innlent „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Viðskipti innlent Atvinnumennskan í útlöndum: Tekjur, tækifæri og margir hattar á höfði Atvinnulíf Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Fleiri fréttir Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Paramount sigrar Netflix í baráttunni um Warner Bros. Davos-toppur hættir vegna Epstein-tengsla Rússar farið með hundruð milljarða í gegnum bresk aflandssvæði Trump hækkar tolla á öll lönd Flestir Trump-tollarnir dæmdir ólöglegir Einn stofnenda ASOS fannst látinn Bar vitni í dómsmáli sem gæti dregið dilk á eftir sér Taka umsókn Moderna til skoðunar eftir allt saman Íhuga að fresta útgáfu PS6 um allt að tvö ár Hefja aftur viðræður við Paramount ESB hefur rannsókn á söluháttum Shein og ólöglegum varningi Kanna hvort klámfengnar myndir Musk hafi brotið persónuverndarlög Funda um stofnun innlendrar greiðslumiðlunar Skipta út stjórnarformanni sem sendi Epstein pyntingamyndband Gera Wolt-sendla starfsmenn en á óhefðbundnum kjörum Neita að taka fyrir umsókn um nýja kynslóð flensusprautu Mega ekki kenna haframjólk við mjólk Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Sjá meira