Ótrúlegar lokamínútur á Skaganum Kristinn Páll Teitsson skrifar 23. maí 2014 21:25 Vísir/Anton
Ótrúlegur lokakafli tryggði Víking Ólafsvík stigin þrjú gegn ÍA á Akranesi í dag. Skagamenn voru 2-0 yfir þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka en Ólafsvíkurmenn gáfust ekki upp og skoruðu sigurmarkið í uppbótartíma. Flest benti til öruggs sigurs Skagamanna um miðbik seinni hálfleiks í stöðunni 2-0 fyrir heimamönnum. Antonio Jose Mossi minnkaði muninn fyrir gestina á 72. mínútu og jafnaði Eyþór Helgi Birgisson metin í uppbótartíma af vítapunktinum. Ballið var hinsvegar ekki búið, Fannar Hilmarsson skoraði sigurmark Ólafsvíkinga á fjórðu mínútu uppbótartíma og var leikurinn flautaður af stuttu síðar, ótrúlegur lokakafli. Á Akureyri náðu heimamenn forskotinu í fyrri hálfleik þegar Ævar Ingi Jóhannesson lagði hann í netið af stuttu færi og leiddi KA 1-0 í hálfleik. Guðmundur Atli Steinþórsson jafnaði metin í upphafi seinni hálfleiks og Guðmundur skoraði sigurmark HK aðeins fimm mínútum síðar. Sterkur sigur og eru nýliðarnir úr Kópavoginum með sjö stig eftir þrjá leiki. Á Selfossi nældi Þróttur í þrjú stig með naumum sigri á Selfyssingum. Eina mark leiksins skoraði hinn funheiti Matthew Eliason en þetta var fjórða mark Eliason í þremur leikjum. Þróttur hefur unnið alla þrjá leiki sína á tímabilinu og situr á toppnum með níu stig.Úrslit: ÍA 2-3 Víkingur Ólafsvík KA 1-2 HK Selfoss 0-1 Þróttur
Íslenski boltinn Mest lesið Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug Körfubolti „Ég skulda tannlækninum afsökunarbeiðni“ Sport Uppgjör: Valur - Álftanes 92-80 | Hökkuðu gestina í sig án Kristófers Körfubolti Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Fótbolti „Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum með augnaráð sem hefði getað drepið“ Fótbolti Mikil spenna í Færeyjum enda HM-sætið enn möguleiki Fótbolti „Ég var bara millimetrum frá því að lamast“ Sport Sögulegt bardagakvöld á Ásbrú: „MMA er ekki ólöglegt“ Sport Notaði eiginmanninn sem héra og vann sitt fyrsta maraþon Sport Fleiri fréttir Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira