Tíu mörk í níu leikjum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. maí 2014 18:08 Mynd/Vålerenga
Viðar Örn Kjartansson heldur áfram að raða inn mörkunum í norsku úrvalsdeildinni en í dag skoraði hann bæði mörk Vålerenga í 2-2 jafntefli gegn Start. Viðar kom sínum mönnum yfir á fimmtándu mínútu en Start náði að svara með tveimur mörkum í síðari hálfleik. Viðar tryggði Vålerenga svo annað stigið með því að skora úr vítaspyrnu á lokamínútu venjulegs leiktíma.. Viðar hefur verið sjóðheitur síðan hann kom til Noregs og er langmarkhæsti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar. Næstu menn á eftir koma með fimm mörk.Hjötur Logi Valgarðsson lagði upp mark fyrir Sogndal sem gerði 2-2 jafntefli við Álasund. Hjörtur Logi spilaði allan leikinn.Steven Lennon, fyrrum leikmaður Fram, skoraði annað marka Sandnes Ulf í 2-2 jafntefli gegn Viking. Steinþór Freyr Þorsteinsson lagði upp fyrra mark sinna manna í Viking.Sverrir Ingi Ingason, Indriði Sigurðsson, Björn Daníel Sverrisson, Jón Daði Böðvarðsson og Steinþór Freyr voru allir í byrjunarliði Viking og spiluðu allan leikinn. Hannes Þór Halldórsson stóð í markinu hjá Sandnes Ulf.Bodö/Glimt vann Brann, 2-1, á útivelli en Birkir Már Sævarsson sat allan leikinn á bekknum hjá síðarnefnda liðinu.Björn Bergmann Sigurðarson var í byrjunarliði Molde sem vann Lilleström, 2-1, á útivelli. Pálmi Rafn Pálmason spilaði allan leikinn fyrir Lilleström. Molde er á toppi deildarinnar með 22 stig og fimm stiga forystu á næsta lið. Viking er í þriðja sæti með sautján stig, Vålerenga er í fjórða sætinu með fimmtán stig og Lilleström í því sjöunda með fjórtán stig. Brann, Sandnes Ulf og Haugesund eru meðal neðstu liða.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Súkkulaðimjólkin sögð betri fyrir íþróttafólk en íþrótta- eða orkudrykkir Sport Norðmenn rífast um hvort kynferðisafbrotamaður eigi að spila með landsliðinu Fótbolti Fyrri úrslitaleikurinn af tveimur Fótbolti Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Enski boltinn Tveir áhorfendur létust á mismunandi tímum á sama leikvangi Sport „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Íslenski boltinn Svona var blaðamannafundur Íslands í Bakú Fótbolti Ísold verður bolabítur og heldur til á upphafsslóðum REM næstu árin Sport Saka FIFA um að stofna „gervi“ leikmannasamtök Fótbolti San Marínó gæti tryggt sig í umspil um HM-sæti með því að tapa nógu stórt Fótbolti Fleiri fréttir Breiðablik - Fortuna | Blikar sparka Evrópubikarnum af stað Segir að Yamal sé afar sorgmæddur og sár Fyrrum United-maður sakaður um að hrækja á stuðningsmenn Úlfarnir komnir með nýjan þjálfara „Mjög spennt að sjá hvað þær geta“ Leikmaður Keflavíkur kallaður inn í landslið Palestínu Mikael ekki með í leikjunum mikilvægu og Logi er lasinn Strákarnir æfðu í sólinni í Bakú Svona var blaðamannafundur Íslands í Bakú „Ráðafólk fótboltans verður að hlusta á áhyggjur kvenna“ Fyrrverandi Chelsea-stjarna missti meðvitund á æfingu San Marínó gæti tryggt sig í umspil um HM-sæti með því að tapa nógu stórt Gefa Íslandi aðeins fimmtán prósent líkur Saka FIFA um að stofna „gervi“ leikmannasamtök „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Cristiano Ronaldo segist eiga bara eitt eða tvö ár eftir Fyrri úrslitaleikurinn af tveimur Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Norðmenn rífast um hvort kynferðisafbrotamaður eigi að spila með landsliðinu Arna hélt hreinu og lagði upp sigurmarkið Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima Graham Potter: Það er allt í lagi með Alexander Isak Mamma hans trúði honum ekki Setja rúma fjóra milljarða í það að losa fótboltavelli við allt gúmmikurlið Barcelona fór á bak við spænska sambandið og sendi Yamal í aðgerð FH-stelpurnar sáu um mörkin í sannfærandi sigri Íslands „Menn beita öllum brögðum“ Er framherji Brentford óvænt að banka á landsliðsdyrnar hjá Brasilíu? Þurfa að borga háar fjárhæðir fyrir bílastæði á HM Sjá meira