Auktu líkurnar á sigri í steinn, blað og skæri Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. maí 2014 09:43 Keppendur nota handahreyfingar til að mynda stein, blað eða skæri. Steinn sigrar skæri, skæri sigra blað og blað sigrar steininn.
Leikurinn „steinn, blað eða skæri“ hefur í gegnum árin verið notaður til að útkljá mál og taka ákvarðanir. Ný rannsókn sýnir að árangur í leiknum byggir ekki aðeins á tilviljun heldur er hægt að hafa áhrif á gengi sitt í leiknum. NPR fjallar um málið. Stærðfræðingar við Zheijang háskólann í Kína tóku til skoðunar lögmálið að þátttakendur velji einn af möguleikunum þremur af handahófi. 360 nemendur tóku þátt í rannsókninni og fengu þeir greitt fyrir að ná árangri í leiknum. Þannig fengu þeir hvatningu til að standa sig vel. Að leiknum loknum kom í ljós að svörin dreifðu sér nokkuð jafnt, þ.e. hver aðgerð fyrir sig (steinn, blað eða skæri) voru notuð u.þ.b. jafn oft. Því var reiknað með. Hins vegar kom fleira áhugavert í ljós. Svo virðist sem þeir sem vinni sigur í einvígi í leiknum, t.d. með því að nota skæri gegn blaði eða blað gegn steini voru líklegri til þess að halda sig við sömu formúlu. Þeir sem töpuðu voru hins vegar líklegri til þess að breyta. Nú er að sjá hvort þessar upplýsingar reynist lesendum Vísis hjálplegar næst þegar þeir spila „stein, blað eða skæri“.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira