Randers og fleiri félög á eftir Guðjóni Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. maí 2014 12:15 Guðjón Baldvinsson. Mynd/HBK
Guðjón Baldvinsson gæti verið á leið frá Halmstad í Svíþjóð til Danmerkur en sænska blaðið Expressen greinir frá því að nokkur dönsk félög hafi áhuga á framherjanum. Blaðið segir að fulltrúar nokkurra danskra félaga hafi verið í stúkunni í gærkvöldi þegar Guðjón skoraði í 2-2 jafntefl gegn AIK. Þetta var hans fyrsta mark á heimavelli síðan 2012 þannig hann valdi sér réttan tíma til að skora. Randers, sem Theodór Elmar Bjarnason leikur með, er eitt þeirra félaga sem hefur áhuga á Guðjóni en samningur hans rennur út eftir leiktíðina í haust. „Ég hef ekki verið beðinn um að framlengja. Ég veit ekki hvort þeir hafi áhuga á því,“ segir Guðjón í samtali við Expressen en hvað finnst honum um það? „Kannski eru þetta skilaboð til mín. Ég veit að Halmstad er búið að tala við aðra leikmenn en ekki mig. Kannski vilja þeir bara ekki halda mér,“ segir Guðjón Baldvinsson. Guðjón skoraði 16 mörk í 29 deildarleikjum fyrir Halmstad þegar liðið komst upp úr 1. deildinni fyrir tveimur árum og fimm mörk í 29 leikjum í fyrra er liðið hélt sér uppi í úrvalsdeildinni. Markið gegn AIK í gær var hans fyrsta í deildinni á þessu tímabili í átta leikjum.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Guðlaug Edda á von á barni Sport Víkingur - Vestri | Hver verður meistari meistaranna? Íslenski boltinn Íslensku íþróttaugnablikin: „Hann var búinn að flauta“ Sport Yfirmaður hjá Bayern hæðist að Liverpool Enski boltinn Féll og lést skömmu fyrir fyrsta leik á nýuppgerðum HM leikvangi Fótbolti Handa- og fótalaus en sakaður um morð Sport Bandaríska landsliðið var niðurlægt í seinni hálfleik Fótbolti Antonelli vann aftur og tók met af Hamilton Formúla 1 Frjálsíþróttastjarnan gerði grín að West Ham Enski boltinn Tudor hættir störfum hjá Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Mark Karólínu dugði skammt og Inter datt úr leik Thelma Karen byrjar tímabilið vel Tudor hættir störfum hjá Tottenham Linda Líf með mark og stoðsendingu í fyrsta deildarleik Víkingur - Vestri | Hver verður meistari meistaranna? Hildur fór í fýluferð til Tenerife Framkvæmdastjórinn segir af sér í miðjum stormi Lagður inn á spítala og missir líklega af síðasta leiknum Féll og lést skömmu fyrir fyrsta leik á nýuppgerðum HM leikvangi Yfirmaður hjá Bayern hæðist að Liverpool Frjálsíþróttastjarnan gerði grín að West Ham Bandaríska landsliðið var niðurlægt í seinni hálfleik Átta leikmenn yfirgefa enska landsliðshópinn „Við þurfum að læra að klára þessa leiki“ Sjáðu mörkin hans Orra: Ungi fyrirliðinn okkar mætti aftur með stæl Aberdeen semur við Eyja-Elvis Senegalar fögnuðu titlinum sem er búið að taka af þeim Leik lokið: Kanada - Ísland 2-2 | Jafntefli í Toronto Orri Steinn byrjar og er með fyrirliðabandið Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Blikar léku við hvurn sinn fingur í úrslitaleiknum Heiða Ragney skoraði í fyrsta leik City fór langt með að tryggja titilinn í stórsigri gegn United Tuttugu mínútna seinkun á landsleiknum Glódís óheppin að skora ekki í tvígang Spila fótboltaleik með fjórum leikhlutum í fyrsta sinn Barcelona vill kaupa hetju Kósovó Baulað á Ben White: „Við stöndum með honum“ Sveindís meiddist næstum því þegar hún fagnaði glæsimarki Tvítug knattspyrnukona lést Áfall fyrir Barcelona Sjá meira