Gat áður aðeins talað um veikindin við lækna Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. mars 2014 12:00 Ingólfur Sigurðsson í hátíðarbúningi Vals. Mynd/Vísir
Ingólfur Sigurðsson, knattspyrnumaðurinn ungi sem leikur með Þrótti R., er í opinskáu og einlægu viðtali í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins í dag þar sem hann opnar sig um geðsjúkdóm sem hann glímir við. Ingólfur, sem er 21 árs gamall og hefur áður verið á mála hjá KR, Val, Heerenveen og Lyngby, þjáist af kvíðaröskun, sjúkdómi sem hann greindist með 15 ára gamall. „Undanfarna mánuði hefur mér liðið mjög vel. Veikindin hafa ekkert látið á sér kræla. Á sama tíma hef ég verið mun opnari gagnvart mínum eigin tilfinningum en áður og um leið veikindunum. Lengi vel gat ég ekki hugsað mér að tala um þau við aðra en lækna, sálfræðinga og mína nánustu en núna þykir mér ekkert óþægilegt að standa berskjaldaður með þessum hætti,“ segir Ingólfur í viðtali við Orra Pál Ormarsson, blaðamann Morgunblaðsins. Ingólfur hefur oft þurft að glíma við neikvæða umræðu um sig en hann kom í þrígang heim úr atvinnumennsku áður en hann varð tvítugur. „Umræðan var þung eftir að ég kom heim og inntakið í henni einfalt: „Þessi gæi er bara hrokafullur og snarruglaður! Nú er hann alveg búinn!“ Ég fann fyrir einlægri ánægju hjá sumum með það að mér hefði mistekist. Ég lét þetta samt ekki trufla mig, hlakki í einhverjum yfir óförum mínum er það bara þeirra mál,“ segir Ingólfur. Honum líður mun betur í dag og hlakkar til sumarsins með Þrótti í 1. deildinni en í viðtalinu fer hann yfir hvernig sjúkdómurinn hefur haft áhrif á líf hans sem og knattspyrnuferilinn.
Íslenski boltinn Mest lesið Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug Körfubolti „Ég skulda tannlækninum afsökunarbeiðni“ Sport Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Uppgjörið: Aserbaísjan - Ísland 0-2 | Öruggur sigur og úrslitaleikur framundan Fótbolti Ronaldo sá rautt og óð reiður til Heimis Fótbolti Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Golf Uppgjör: Valur - Álftanes 92-80 | Hökkuðu gestina í sig án Kristófers Körfubolti Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Fótbolti Frakkar á HM og Íslandi dugar jafntefli Fótbolti Ronaldo svaraði Heimi og sagði hann sniðugan Fótbolti Fleiri fréttir Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira