Það er von Andri Þór Sturluson skrifar 27. febrúar 2014 18:09 Glæsileg áburðarverksmiðja.
Þegar myrkrið hefur læst sínum köldu klóm í sálartetrið, vonleysið yfirþyrmandi og ekkert er eftir nema að fara í byggingarvöruverslun og kaupa sér reipi til að binda lokahnútinn á þetta kjaftæði, þá þakkar maður guði fyrir Framsóknarflokkinn. Eins og englar stíga fram úr skýjunum átta þingmenn Framsóknarflokksins og boða okkur mikinn fögnuð. Allt ungt fólk dreymir um framtíðarstarf í áburðarverksmiðju og nú gæti sá draumur loksins orðið að veruleika ef bjargvættirnir Þorsteinn Sæmundsson, Vigdís Hauksdóttir, Páll Jóhann Pálsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Haraldur Einarsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Þórunn Egilsdóttir og Frosti Sigurjónsson sem standa að ályktuninni, fá sínu fram. Með áburðarverksmiðju í Helguvík eða á Þorlákshöfn getur ungt fólk fengið hálaunuð störf þar sem hægt er að vaxa og dafna í starfi svo lengi sem það kemur ekki upp eldur og það brennur inni. Svo eru áburðarverksmiðjur svo fjandi fallegar.
Harmageddon Mest lesið Vinsælasta söngkona Póllands á Íslandi Harmageddon Gera á torgum það sem nasistar hefðu reynt að fela Harmageddon Miðasalan á Eistnaflug er hafin. Harmageddon Sannleikurinn: Forsetinn notaði orðið samstaða 17 sinnum í ávarpi sínu Harmageddon Vala Grand trúlofuð á ný Harmageddon Gísli Marteinn vill opin prófkjör Harmageddon Lou Bega eða Lou Reed? Harmageddon Daft Punk koma fram á Grammy verðlaununum á næsta ári Harmageddon Of Monsters And Men eru byrjuð að vinna að nýju efni Harmageddon Púlsinn 18.ágúst 2014 Harmageddon