Sannleikurinn: Erill hjá lögreglu vegna Furby leikfanga Snær Blær skrifar 7. janúar 2014 09:14 Flestir klefar í fangageymslum lögreglunnar á Hverfisgötu voru fullir af leikföngum í nótt.
Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Ekki síst vegna ölvunar svokallaðra Furby leikfanga sem voru vinsæl jólagjöf til barna í ár en hafa reynst vera stórhættuleg. Þannig hafði lögreglan afskipti af þremur bifreiðum vegna gruns um að bílstjórinn væri Furby undir áhrifum áfengis og þremur að sama skapi vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Einnig var erill á lögreglunni vegna hávaða frá heimahúsum þar sem Furby leikföng gengu berserksgang og réðust gegn eigendum sínum.Ég er Furby, taktu mig til leiðtoga þíns krakki!Furby var vinsælasta leikfangið fyrir jólin í ár en er í raun nokkuð fullkomið stríðstól sem lagt hefur líf fjölda fólks í rúst. Leikfangið er krúttlegt vélmenni með þarfir og þrár og þurfa börnin sjálf að sjá um að sinna dýrinu sem bregst við hljóðum, snertingu og lítur á allar snöggar hreyfingar í kringum sig sem ógn við sig. Þá er dýrið fljótt að skipta skapi og hefst þá eyðileggingarherferð sem endar ekki fyrr en lögreglan grípur inn í. Lögregla fékk ennfremur tilkynningu um klukkan fjögur í nótt um ölvaðan sofandi Furby við Lækjargötu í Reykjavík. Leikfangið reyndist illa áttað og gat lítið tjáð sig sökum ölvunar. Var það vistað í fangageymslu uns ástand þess lagaðist og eigandi þess, átta ára stúlka, treysti sér til að sækja það. Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu sem bregst illa við ef henni er ekki sinnt.
Harmageddon Mest lesið Myndband: Vök með nýtt lag á Nordic Radio Playlist Bar Harmageddon Sannleikurinn: Erill hjá lögreglu vegna Furby leikfanga Harmageddon Leikræn tilþrif sem eiga best heima í sápuóperu Harmageddon Fannst ekki spennandi að spila Little Talks fimm sinnum á dag Harmageddon Sannleikurinn: Vodafone ráðleggur viðskiptavinum sínum að skipta yfir í Nova Harmageddon Hver græðir á íslenskri tónlist? Harmageddon Kanye West biður öryggisverði um að fjarlægja tónleikagest Harmageddon Of Monsters And Men eru byrjuð að vinna að nýju efni Harmageddon Sannleikurinn: Mesti óþverri ársins Harmageddon Púlsinn 19.ágúst 2014 Harmageddon