Brúðarkjóllinn á uppboð Marín Manda skrifar 4. júní 2013 07:00 Elizabeth Taylor og brúðarkjóllinn frægi sem nú er til sölu.
Brúðarkjóll Elizabeth Taylor sem hún klæddist þegar hún giftist fyrsta eiginmanni sínum, Conrad Hilton árið 1950, hefur verið settur til sölu í uppboðshúsinu Christie‘s í London. Fegurð brúðarkjólsins þykir endurspegla fegurð fyrri eiganda en talið er að það hafi tekið fimmtán saumakonur tvo til þrjá mánuði að sauma kjólinn, sem sé svo flókinn að ómögulegt hafi verið að endurtaka saumaskapinn. Taylor bar kjólinn á brúðardaginn sinn þegar hún var einungis 18 ára en kjóllinn var gjöf frá kvikmyndaverinu. Brúðkaupið var einn stærsti viðburður ársins og um 700 manns mættu í veisluna. Uppboðshúsið Christie‘s gerir ráð fyrir að kjólinn seljist fyrir allt að 50.000 pund, sem samsvarar tæplega 9 milljónum íslenskra króna.
Mest lesið Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Lífið Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Lífið „Svolítið eins og að vera á annarri plánetu“ Ferðalög Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Lífið Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Lífið Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Lífið Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Lífið Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Lífið Raye ástfangin í rússíbana Lífið Fleiri fréttir „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira