Patrekur: Ekki staðið við loforð hjá Val Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. janúar 2013 06:45 Patrekur tekur við þjálfun Hauka í sumar.fréttablaðið/valli
Patrekur Jóhannesson var í gær ráðinn þjálfari Hauka og mun hann taka við starfinu í sumar. Hann tók við Val síðastliðið sumar og mun klára tímabilið að Hlíðarenda. „Ég mun klára mitt starf hjá Val eins og atvinnumaður," sagði Patrekur á blaðamannafundi á Ásvöllum í gær. „Þetta truflar mig ekki neitt. Ég hef komið hreint og beint fram við Val frá upphafi," bætti hann við en Patrekur tilkynnti forráðamönnum Vals um miðjan desember að hann vildi hætta eftir tímabilið. Þá fóru hjólin að snúast varðandi starfið hjá Haukum. Hann tekur við því af Aroni Kristjánssyni sem mun einbeita sér að landsliðsþjálfarastarfinu frá og með sumrinu. Patrekur segir að ekki hafi verið staðið við loforð sem voru gefin hjá Val. „Ég lenti í því sama og Júlíus Jónasson [sem hætti hjá Val í desember 2010] – leikmenn fóru rétt fyrir tímabilið og svo var lofað leikmönnum sem komu ekki," sagði Patrekur. Haukar og Valur eiga eftir að mætast minnst einu sinni í viðbót í deildinni en hlutskipti liðanna hafa verið ólík hingað til. Haukar eru langefstir með 23 stig en Valur situr á botni deildarinnar með sjö stig úr tólf leikjum.
Olís-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira