Sannleikurinn: Ólafur Ragnar angraði leikmenn með sínum leiðinlegustu sögum til þessa Andri Þór Sturluson skrifar 19. nóvember 2013 17:07 Helgi Valur og Alfreð voru að deyja úr leiðindum þar sem þeir sátu við hlið Ólafs. Gunnleifur Gunnleifsson, varamarkvörður, náði að læðast aftan að honum en hætti við að rota forsetann þegar hann sá ljósmyndara. KSÍ
Þegar forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, frétti af því að athygli var að fá í Zagreb í Króatíu var hann fljótur upp í næstu vél til að fá sinn skerf. Knattspyrnusamband Íslands birti þessa mynd á Facebook síðu sinni en þar sést hvar Ólafur hefur troðið sér inn á íslenska liðið en samkvæmt KSÍ „tók forsetinn ekki annað í mál en að snæða hádegisverð með leikmönnum“ og skipti þá engu að klukkan var fjögur um nótt. Leikmenn voru ræstir fram úr og stauluðust niður til að þóknast forseta sínum. Þeir snæddu brauðsneiðar og gufusoðið grænmeti honum til samlætis á meðan hann sagði gamansögur af sjálfum sér og gortaði af því þegar hann tók Þóru Arnórsdóttur „í kastljósið“ í seinustu forsetakosningum (hans orð). Hringja þurfti í erlenda fjölmiðla og bjóða þeim viðtal við forsetann til að dreifa athygli hans á meðan leikmenn læddust aftur í bælið til að ná hvíld fyrir stóra leikinn.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en þar má oft sjá komment frá Ólafi.
Harmageddon Mest lesið Þið sem hélduð að geitungar væru andstyggilegir Harmageddon „Af fenginni reynslu er mér ljóst að þetta eru ekki kjarkmiklir menn“ Harmageddon Sannleikurinn: "Ef hún hefði flúið með þrjá danska ketti til Íslands þá væri búið að finna þá“ Harmageddon Notuðu Twitter aðgang Mike Tyson til að kynna nýja plötu. Harmageddon Tuttugu ára afmæli X-977 - Ensími Harmageddon Útgáfutónleikar Reykjavík! Harmageddon Fór á fyllerí með David Grohl í tíunda bekk Harmageddon Á kafi í kynlífi Harmageddon „Við þurfum að kenna krökkum að taka eiturlyf með öruggum hætti“ Harmageddon Segir Þjóðkirkju stuðla að heilaskaða Íslendinga Harmageddon
Sannleikurinn: "Ef hún hefði flúið með þrjá danska ketti til Íslands þá væri búið að finna þá“ Harmageddon
Sannleikurinn: "Ef hún hefði flúið með þrjá danska ketti til Íslands þá væri búið að finna þá“ Harmageddon