Sannleikurinn: Fimm enn í gæsluvarðhaldi grunaðir um að spila jólalög Andri Þór Sturluson skrifar 9. nóvember 2013 13:52 Sakborningar huldu andlit sín fyrir dómi.
Allir fimm sakborningarnir í stóra Helgu Möller-málinu svokallaða neita sök. Þeir eru sakaðir um að hafa byrjað að spila jólalög í nóvember og einn þeirra er einnig sagður hafa verið byrjaður að skipta um perur í útijólaseríu. Þeir eru ákærðir fyrir stærstu brot á hátíðarhöftum sem eru til meðferðar hjá sérstökum saksóknara. Mennirnir eru sakaðir um að hafa í sameiningu verið komnir í jólaskap allt of snemma með þeim afleiðingum að fjöldi fólks varð pirrað. Stemningin var samkvæmt ákæru rekin í nafni hátíðarandans. Hinir ákærðu hafa allir setið í gæsluvarðhaldi síðan í byrjun nóvember vegna almannahagsmuna en saksóknari telur víst að verði þeim sleppt muni þeir byrja að kaupa jólagjafirnar og baka piparkökur. Hæstiréttur staðfesti á föstudaginn gæsluvarðhaldsúrskurði yfir mönnunum en allir höfðu þeir kært úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar. Að minnsta kosti tíu sambærileg mál eru í rannsókn hjá sérstökum saksóknara. Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu sem er óvanalegt á þessum árstíma.
Harmageddon Mest lesið Ísland í röngu tímabelti Harmageddon Sannleikurinn: Engeyjarættin stórgræðir á að smita börn af einhverfu Harmageddon Magnað myndband frá Úlfi úlfi Harmageddon Fimm verstu handboltarokklögin Harmageddon Sannleikurinn: Um vegi, hraun og auðmenn Harmageddon Söngvari Stone Roses vitni í kynferðisafbrotamáli Harmageddon Þetta er ekki úr vísindaskáldsögu Harmageddon Big-bang eða Big-hole? Harmageddon Leoncie loksins komin heim Harmageddon Gabríel með stjörnuhröp Harmageddon