Ók á 16 bíla og endaði á staur Finnur Thorlacius skrifar 28. október 2013 14:30 Lincoln Navigator bíllinn sem konan ók.
Sjónarvottar sem sáu konu aka á 16 bíla áður en hún endaði á ljósastaur lýsa uppákomunni eins og þeir væru staddir í miðri bíómynd eða í tölvubílaleiknum Grand Theft Auto. Konan, sem er 62 ára, ók stórum Lincoln Navigator jeppa og stórskemmdi flesta þá bíla sem á vegi hennur urðu í bænum Mississauga í Ontario fylki í Kanada. Enginn meiddist þó alvarlega í þessum árekstrum öllum, en árekstarloftpúðar flestra bílanna blésu upp. Margir bílanna sem konan ók á eru illa farnir og ljóst að tjónið er gríðarlegt sem hún olli. Einn sjónarvottur furðaði sig á því að bílnum hafi ýmist verið ekið afturábak eða áfram á milli árekstra, líkt og allt væri þetta með vilja gert. Lögreglan rannsakar nú hvort eitthvað hafi verið að bremsubúnaði bílsins, sem telst þó harla ólíklegt af lýsingu sjónarvotta að dæma. Fórnarlömbin á víð og dreif. Á vígvelli og sumir dýrir bílar liggja í valnum.
Mest lesið Sigríður Björk segir af sér Innlent Ekki lengur vonlaust tilfelli sem enginn hefur trú á Innlent Heldur fullum launum Innlent Ósammála lækni og greiðir fyrir aðgerðina sjálfur Innlent Strætisvagni ekið á leikskólastarfsmann og barn Innlent Sögð ætla að leita á náðir Trumps Erlent Öll gögn á ensku annars ógildist krafan Innlent Flestum þykir Guðrún og Sigmundur hafa staðið sig illa Innlent Farsæll ferill eða í meira lagi umdeildur? Innlent Trump náðar Giuliani og aðra tengda kosningasamsærinu í Georgíu Erlent