Matthías með tvö í þriðja sigri Start í röð | Myndband Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 22. september 2013 22:15
Matthías Vilhjálmsson skoraði bæði mörk Start sem sigraði Sogndal í mikilvægum leik í fallbaráttu norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Start er komið úr fallsæti eftir þrjá sigra í röð. Matthías lék allan leikinn og skoraði á 28. og 48. mínútu. Hér má sjá myndband af mörkunum í leiknum. Guðmundur Kristjánsson kom inn á sem varamaður á 71. mínútu. Start var í miklum vandræðum framan af móti en hefur nú leikið fjóra leiki án taps og er fimm stigum frá fallsæti og þremur stigum frá umspilssæti eftir 24 umferðir af 30. Annað Íslendingalið Sarpsborg 08 vann einnig mikilvægan sigur í fallbaráttunni. Guðmundur Þórarinsson lék allan leikinn þegar Sarpsborg vann Tromsö 3-0. Þórarinn Ingi Valdimarsson sat allan leikinn á bekknum. Sarpsborg 08 er enn neðst, nú með 23 stig en Tromsö er í umspilssæti með 25 stig. Indriði Sigurðsson og Jón Daði Böðvarsson léku allan leikinn fyrir Viking sem sigraði Vålerenga 1-0. Viking er í þriðja sæti deildarinnar, átta stigum á eftir toppliði Rosenborg. Steinþór Freyr Þorsteinsson lék allan leikinn fyrir Sandnes Ulf sem steinlá heima gegn Molde 4-1. Sandnes Ulf er líkt og Start með 28 stig í harðri fallbaráttu.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Fótbolti Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Körfubolti „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Íslenski boltinn Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Golf Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Körfubolti „Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ Fótbolti Lárus hættur í Þorlákshöfn Körfubolti Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Körfubolti Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Enski boltinn Umdeilt víti gefur Celtic séns á titlinum en jafntefli dugir Tómasi og félögum Fótbolti Fleiri fréttir Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Fylkir - FH | Heimir mætir gömlum lærisveinum Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Benóný stýrði fögnuðinum Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Sjáðu Foden stela senunni í sigri City „Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ „Þú þarft raunverulega að þjást“ „Mann fyrir mann eigum við að vinna þá“ Benóný Breki fer á Wembley ÍA vann Grindavík í vítakeppni eftir mikla dramatík Uppgjörið: Stjarnan - KR 2-1 | Stjarnan náði fram hefndum Umdeilt víti gefur Celtic séns á titlinum en jafntefli dugir Tómasi og félögum Afturelding skoraði fimm mörk og flaug áfram með Víkingum Safonov hetjan er PSG tryggði titilinn í toppslag Inter er bikarmeistari Ítalíu „Tímapunkturinn hefði ekki getað verið mikið verri“ City fagnaði gríðarmikilvægum sigri gegn Palace Birta mynd af „njósnara“ Southampton „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Þróttur R. - Breiðablik 1-2 | Tíu Blikar tryggðu sig í átta liða úrslitin „Það var bara eins og kóngurinn væri mættur í bæinn“ Carrick eigi skilið að fá starfið Andri Lucas skrifar undir langtímasamning Brást illa við spurningu um svindl og sleit fundinum: „Sýndu smá virðingu“ Arnar velur tvo landsliðshópa: Viktor Bjarki fær kallið Blaðamannafundur KSÍ: Arnar valdi hóp sem mætir heimsmeisturunum „Þetta er allt annað Fram-lið“ Munu mæla með því við Ratcliffe að ráða Carrick Skrípamark kom í veg fyrir að Ronaldo yrði meistari í gær Sjá meira