Hólmfríður hélt upp á nýja samninginn með marki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. september 2013 12:54 Hólmfríður Magnúsdóttir. Mynd/Daníel
Fjórar íslenskar knattspyrnukonur voru í byrjunarliði Avaldsnes í dag þegar liðið tapaði 2-3 á útivelli á móti Trondheims Örn í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Kristin Lie tryggði Trondheims Örn öll þrjú stigin með marki á lokamínútunni. Hólmfríður Magnúsdóttir hafði jafnað metin 17 mínútum fyrir leikslok en Trondheims Örn komst í 2-0 í upphafi seinni hálfleik þegar Mist Edvardsdóttir varði fyrir því óláni að senda boltann í eigið mark. Diane Caldwell, fyrrum leikmaður Þór/KA, minnkaði muninn í 2-1 á 62. mínútu nýkomin inná sem varamaður og Hólmfríður jafnaði síðan ellefu mínútum síðar. Miðvörðurinn Kristin Lie var hinsvegar hetja síns liðs þegar hún skoraði sigurmarkið á 90. mínútu. Guðbjörg Gunnarsdóttir var í marki Avaldsnes, Mist Edvardsdottir spilaði í vörninni, Þórunn Helga Jónsdóttir lék á miðjunni og Hólmfríður Magnúsdóttir var í framlínunni. Þær léku allar leikinn nema Þórunn Helga sem var tekin útaf á 73. mínútu eða strax eftir að Hólmfríður skoraði. Hólmfríður hefur nú skorað 7 mörk í deildinni á tímaiblinu en hún framlengdi einmitt samning sinn við Avaldsnes í gær.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Súkkulaðimjólkin sögð betri fyrir íþróttafólk en íþrótta- eða orkudrykkir Sport Frétti af Schumacher og fékk sjokk: „Átti að fara njóta lífsins“ Formúla 1 Norðmenn rífast um hvort kynferðisafbrotamaður eigi að spila með landsliðinu Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Fortuna 0-1| Dönsku meistararnir þurftu að hafa fyrir hlutunum Fótbolti Fyrri úrslitaleikurinn af tveimur Fótbolti Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Enski boltinn Ísland - Serbía | Stelpurnar okkar stefna á EM Körfubolti Svona var blaðamannafundur Íslands í Bakú Fótbolti „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Íslenski boltinn Tveir áhorfendur létust á mismunandi tímum á sama leikvangi Sport Fleiri fréttir Sjálfsmark Cecilíu réði úrslitum í tapi Inter Glódís hetjan í ótrúlegum sigri á Arsenal Arna Sif aftur heim Leiðin á HM: Þetta er hálfpartinn eins og á Manhattan Uppgjörið: Breiðablik - Fortuna 0-1| Dönsku meistararnir þurftu að hafa fyrir hlutunum Segir að Yamal sé afar sorgmæddur og sár Fyrrum United-maður sakaður um að hrækja á stuðningsmenn Úlfarnir komnir með nýjan þjálfara „Mjög spennt að sjá hvað þær geta“ Leikmaður Keflavíkur kallaður inn í landslið Palestínu Mikael ekki með í leikjunum mikilvægu og Logi er lasinn Strákarnir æfðu í sólinni í Bakú Svona var blaðamannafundur Íslands í Bakú „Ráðafólk fótboltans verður að hlusta á áhyggjur kvenna“ Fyrrverandi Chelsea-stjarna missti meðvitund á æfingu San Marínó gæti tryggt sig í umspil um HM-sæti með því að tapa nógu stórt Gefa Íslandi aðeins fimmtán prósent líkur Saka FIFA um að stofna „gervi“ leikmannasamtök „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Cristiano Ronaldo segist eiga bara eitt eða tvö ár eftir Fyrri úrslitaleikurinn af tveimur Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Norðmenn rífast um hvort kynferðisafbrotamaður eigi að spila með landsliðinu Arna hélt hreinu og lagði upp sigurmarkið Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima Graham Potter: Það er allt í lagi með Alexander Isak Mamma hans trúði honum ekki Setja rúma fjóra milljarða í það að losa fótboltavelli við allt gúmmikurlið Barcelona fór á bak við spænska sambandið og sendi Yamal í aðgerð Sjá meira