Hrun í kauphöll Tyrklands vegna mótmælanna 3. júní 2013 13:40
Mótmælin í Istanbúl höfuðborg Tyrklands undanfarna daga hafa valdið hruni í kauphöll landsins í dag. Vísitala kauphallarinnar hefur lækkað um 8% í og um 15% frá því 22. maí þegar hún náði sögulegu hámarki. Fjallað er um málið á vefsíðunni CNNMoney. Þar segir að hlutabréfamarkaðurinn í Tyrklandi hafi verið á mikilli siglingu undanfarin ár. Úrvalsvísitalan í kauphöll landsins hefur fjórfaldað gildi sitt síðan árið 2008. Fram kemur að mótmælin séu þau umfangsmestu gegn stjórn Recep Erdogan síðan að stjórnin tók við völdum fyrir áratug síðan. Fari svo að mótmælin haldi lengur áfram óttast menn að þau muni hafa áhrif til hins verra fyrir ferðamannaþjónustu landsins. Ferðamannaþjónustan stendur undir stórum hluta af landsframleiðslunni en í fyrra voru tekjur Tyrkja af henni rúmlega 23 milljarðar dollara.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira