Minntust látins félaga á 27. mínútu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. maí 2013 12:45
Leikmenn AIK og IFK Gautaborgar gerðu hlé á leik sínum í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi til að minnast markvarðarins Ivan Turina. Boltanum var spyrnt útaf þegar 27. mínútan nálgaðist og við tók tilfinningaþrungin stung til minningar um markvörðinn. Turina fannst látinn í rúmi sínu síðastliðinn fimmtudag en talið er að hann hafi fengið hjartaáfall. Stuðningsmenn AIK mættu snemma á völlinn í gærkvöldi merktir bolum til heiðurs Turina og skreyttu völlinn. Söngvar voru sungnir um Turina sem varði mark AIK frá árinu 2010. Turina lék í treyju númer 27 hjá AIK.Mynd/TwitterRósir voru lagðar bakvið markið þar sem stuðningsmenn AIK sátu. Gripu þeir hvert tækifæri og sungu nafn Króatans, veifuðu fánum og hylltu sinn mann. AIK vann 3-1 sigur í leiknum en töluverður taugatitringur virðist hafa verið hjá heimaliðinu í leiknum. Til marks um það klúðruðu heimamenn tveimur vítaspyrnum í fyrri hálfleik. Þeir sneru við blaðinu eftir að hafa lent 1-0 undir og fögnuðu 3-1 sigri með stuðningsmönnum í leikslok. Tilkynnt hefur verið að AIK og Dinamo Zagreb mætist í ágóðaleik í Stokkhólmi þann 13. maí. Allur ágóði fer til fjölskyldu Turina en hann lék með liði Dinamo áður en hann hélt til Svíþjóðar. Landsliðsmaðurinn Helgi Valur Daníelsson spilar með AIK.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Albert ekki meira með íslenska landsliðinu Fótbolti Neitar að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Fótbolti Íslenska landsliðið í bakgarðshlaupum klárt Sport Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk Íslenski boltinn „Þetta er þorpið manns“ Íslenski boltinn Leik lokið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Íslenski boltinn Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Formúla 1 Kane klúðraði víti og heimsmeistararnir voru fljótir að refsa Fótbolti Leikmaður Írlands dregur sig úr leikmannahóp gegn Ísrael Fótbolti Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ Fótbolti Fleiri fréttir Leik lokið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Bayern bjargaði andlitinu gegn neðri deildar liði Grindavík/Njarðvík - FH | Kemst FH á toppinn? Íslensku landsliðskonurnar allt í öllu í sigri Inter Neitar að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Þórir Jóhann kallaður inn í landsliðið Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk Dramatískur sigur og lið Sveindísar á mikilli siglingu Albert ekki meira með íslenska landsliðinu „Þetta er þorpið manns“ Myndaveisla: Ísland gerði svekkjandi jafntefli við Eistland Kane klúðraði víti og heimsmeistararnir voru fljótir að refsa Leikmaður Írlands dregur sig úr leikmannahóp gegn Ísrael „Við eigum að vinna þessa leiki“ Lúxemborg á toppi íslenska riðilsins Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig „Úrslitin eru vonbrigði og leikurinn vonbrigði“ „Það erfiðasta í fótbolta er að skora mörk“ „Láta kné fylgja kviði og keyra dálítið á þá“ Sjáðu mörk úr leik Íslands og Eistlands ásamt vítavörslu Hákons Umfjöllun: Ísland – Eistland 1-1 Svekkjandi jafntefli á Laugardalsvelli Byrjunarlið Íslands gegn Eistlandi: Stefán Teitur og Daníel í hjartanu - Orri fremstur Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn „Held að það sé ekki mikið vesen“ Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér Ringulreið hjá Heimi og leikur við Ísrael í uppnámi Lítur til Svía: „Þetta getur gefið þér helling“ „Ekkert feimnir að tala um það“ Ætlar ekki sömu leið og Óskar Hrafn: „Væri óskandi“ Sjá meira