Verkfall lamar Lufthansa flugfélagið í dag 22. apríl 2013 12:47
Þýska flugfélagið Lufthansa hefur aflýst öllum flugferðum sínum í dag. Ástæðan er verkfall hjá starfsmönnum félagsins öðrum en flugmönnum og flugáhöfnum. Í frétt um málið hjá Bloomberg fréttaveitunni segir að um sé að ræða mestu truflanir á flugsamgöngum í Þýskalandi síðan gosið í Eyjafjallajökli lamaði allar flugsamgöngur í norðanverðri Evrópu árið 2010. Lufthansa hefur aflýst hátt í 1.800 flugferðum í dag. Það er verkalýðsfélagið Ver.di sem stendur að verkfallinu en um 33.000 starfsmenn Lufthansa tilheyra því. Hér er m.a. um að ræða starfsmenn sem sjá um matinn um borð í flugvélunum, þá sem annast viðhald flugvélanna og þá sem vinna við fraktflutninga á vegum Lufthansa. Verkalýðsfélagið gerir kröfu um rúmlega 5% launahækkun. Verkfallið mun aðeins ná til dagsins í dag. Hinsvegar kemur fram í fréttinni að ef ekki hafi náðst samningar í þessari launadeilu fyrir mánaðarmótin munu meðlimir Ver.di kjósa um ótímabundið verkfall í framhaldinu.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira