Á fimm metra háu reiðhjóli Finnur Thorlacius skrifar 25. apríl 2013 10:42
Vekur mikla kátínu á árlegum hjólreiðadegi í Los Angeles. Það er ekki á allra færi að halda jafnvægi á reiðhjóli sem er fimm metra hátt, en þó hefur einn greinilega næga reynslu til þess að hjóla dágóða vegalengd á þessu fáránlega hjóli. Síðustu helgi var árlegur hjóladagur haldinn í Los Angeles og þá er nokkrum götum lokað fyrir hjólreiðamenn. Það nýtti þessi lunkni ofurhugi , Richie Trimble sér og hjólaði meðal annarra venjulegra hjólreiðamanna. Í meðfylgjandi myndskeiði sést sjónarhorn hans vel úr þessum háa söðli og sannast sagna verður hann fyrir vikið að teljast meðal ofurhuga, en fallið væri hátt úr hans söðli ef eitthvað færi úrskeiðis. Litlu má þó muna er hann fer undir næstum jafn háa brú og hjól hans er sem og þegar hann þverar óþægilega umsetna umferðargötu á leið sinni niður á strönd. Ekki einfaldar það málin að hjólið er bremsulaust.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent