Setti hann í samskeytin eftir fimmtán sekúndur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. apríl 2013 14:15 David James ásamt félaga sínum í Abu Dhabi. Glöggir taka eflaust eftir því að James er í treyju ÍBV. Mynd/Twitter
Karlalið ÍBV í knattspyrnu er þessa dagana í æfingaferð í Bournemouth á Englandi. Liðið vann í gær 2-0 sigur á varaliði Bournemouth í æfingaleik. Gunnar Már Guðmundsson kom ÍBV yfir úr vítaspyrnu eftir 11. mínútna leik eftir að brotið var á Ian Jeffs. Leiddu Eyjamenn með einu marki í hálfleik. Tveir Englendingar komu til móts við lið Eyjamanna á Englandi og komu við sögu í leiknum í gær. Annar þeirra, James Freny, kom inná í hálfleik og var ekki lengi að láta að sér kveða. Samkvæmt leiklýsingu Eyjamanna skoraði hann glæsilegt mark eftir 15 sekúndur í síðari hálfleik þegar hann „krullaði boltann upp í samskeytin". Leiknum lauk sem fyrr segir með tveggja marka sigri gestanna. David James kom ekkert við sögu hjá ÍBV í gær. Kappinn er staddur í Abu Dhabi en verður kominn til Englands þegar ÍBV mætir Portsmotuh í æfingaleik þann 16. apríl. Guðjón Orri Sigurjónsson og Elías Fannar Stefnisson skiptu hálfleikjunum á milli sín í gær. Reikna má með því að þjálfari ÍBV, Hermann Hreiðarsson, nýti tækifærið ytra til þess að skoða nokkra erlenda leikmenn.
Íslenski boltinn Mest lesið Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug Körfubolti „Ég skulda tannlækninum afsökunarbeiðni“ Sport Valur - Álftanes 92-80 | Hökkuðu gestina í sig án Kristófers Körfubolti Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Fótbolti „Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum með augnaráð sem hefði getað drepið“ Fótbolti Mikil spenna í Færeyjum enda HM-sætið enn möguleiki Fótbolti „Ég var bara millimetrum frá því að lamast“ Sport Sögulegt bardagakvöld á Ásbrú: „MMA er ekki ólöglegt“ Sport Notaði eiginmanninn sem héra og vann sitt fyrsta maraþon Sport Fleiri fréttir Afar óvænt tap þegar Finnar hylltu goðsögn Hjammi með mikla reynslu: „Kannski ekkert sérstakt í tuttugu tilraunum“ Rosenörn yfirgefur FH Taylor dæmir úrslitaleikinn í Varsjá Mikil spenna í Færeyjum enda HM-sætið enn möguleiki Montiel til KA Marta getur aftur unnið verðlaunin sem voru nefnd eftir henni Kominn í hóp þeirra fáu sem hafa verið heilan bílprófsaldur í landsliðinu Jafnaði við Arnór og Ríkharð á markalistanum Ronaldo gæti endað í leikbanni á HM næsta sumar Frændinn mætti með egg og gerði allt vitlaust „Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum með augnaráð sem hefði getað drepið“ Gaman í íslenska klefanum eftir leik Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Eggert Aron mætir fyrir úrslitaleikinn í Póllandi Skytturnar héldu fullkomnu flugi Englands áfram Frakkar á HM og Íslandi dugar jafntefli Ronaldo sá rautt og óð reiður til Heimis Sjáðu mörk ungu strákanna okkar Mætti á völlinn með jólamynd af Stefáni Teiti og frú „Ætla ekki að horfa oft á seinni hálfleikinn til að skemmta mér“ „Það var kominn tími til að ég myndi skora eitt mark“ „Mikill heiður fyrir mig og mína fjölskyldu“ „Sagði við Albert að ég ætlaði að reyna að finna hann eins mikið og ég gat“ Uppgjörið: Aserbaísjan - Ísland 0-2 | Öruggur sigur og úrslitaleikur framundan Haaland verður á HM og langri bið Noregs lýkur Sjáðu mörk Íslands í Bakú Lúxemborg - Ísland 1-3 | Aftur fögnuðu ungu strákarnir okkar Rómantík hjá Arnari: „Feginn að hann sé ekki einhver stuðningsfulltrúi“ Sjá meira