Nordea sektað um 600 milljónir vegna peningaþvættis 16. apríl 2013 08:36
Fjármálaeftirlit Svíþjóðar hefur sektað Nordea bankann, stærsta banka Norðurlandanna, um 30 milljónir sænskra kr. eða tæplega 600 milljónir kr. vegna brota á reglum Evrópusambandsins um aðgerðir gegn peningaþvætti. Í frétt um málið á vefsíðu börsen segir að fjármálaeftirlitið hafi áður gefið Nordea bankanum aðvaranir um að fara eftir þessum reglum en bankinn hafi ekki farið að tilmælum eftirlitsins. Í tilkynningu frá fjármálaeftirlitinu segir að brot Nordea séu alvarleg og hafi staðið yfir í langan tíma. Þar sem bankinn hafi ekki farið eftir fyrrgreindum reglum hafi hann gefið einstaklingum, sem voru á svörtum listum, aðgang að fé og efnahagstækifærum. Þar að auki hafi verulega skort á upplýsingagjöf frá Nordea þegar kom að reikningum sem höfðu verið frystir að kröfu hins opinbera. Í tilkynningu frá Nordea bankanum segir að stjórn hans telji að sektin sé alltof há. Hinsvegar viðurkennir bankinn brotalamir þegar kemur að innleiðingu fyrrgreindra reglna í starfsemi bankans og segir að það muni verða leiðrétt.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira