Lexus hyggst framleiða LF-LC 2. apríl 2013 14:40
Er 500 hestöfl og mun kosta ríflega 12 milljónir króna. Lexus ætlar greinilega að styrkja enn ofurbílaímynd sína þrátt fyrir að framleiðslu á Lexus LFA hafi nú verið hætt. Hann er reyndar svo dýr bíll að það er ekki nema á færi ofurríkra að krækja sér í eintak af honum. Nú hefur víst verið tekin ákvörðun um að Lexus LF-LC hugmyndabíllinn sem fyrst sást á bílasýningunni í Detroit í fyrra fari í framleiðslu. Bílatímaritið Wards Auto hefur þetta eftir yfirmanni markaðsmála hjá Lexus. Hugmyndabíllinn LF-LC er með um 500 hestafla V8 vél og tvinntækni en ekki er víst að það verði lendingin við fjöldaframleiðslu hans. Búist er við því að bíllinn muni kosta ríflega 100.000 dollara, semsagt upphæð norðan megin við 12 milljónir króna. Geta þá aðeins fleiri látið sig dreyma um hann en LFA bílinn. Miðað við huggulegt útlit LF-LC er þá bara að vona að sögusagnir um framleiðslu hans séu réttar.
Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Innlent Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Erlent Ætla að flytja starfsemi Vogs Innlent Keyrði aftan á strætisvagn Innlent