Eiður Smári skoraði í síðasta sigri Mourinho á Old Trafford Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2013 14:30 Eiður Smári Guðjohnsen. Mynd/Nordic Photos/Getty
Jose Mourinho hefur náð betri árangri en Sir Alex Ferguson þegar knattspyrnustjórarnir tveir hafa mæst með sín lið. Real Madrid mætir Manchester United á Old Trafford í kvöld í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar og verður þetta sextán viðureignin hjá liðum þeirra Mourinho og Ferguson. Þegar þeir mættust síðast, sem var í Meistaradeildinni 2008-09, hafði Sir Alex Ferguson betur. Cristiano Ronaldo, núverandi leikmaður Real Madrid, skoraði þá í 2-0 sigri Manchester United á Internazionale í seinni leiknum í 16 liða úrslitum keppninnar sem fram fór á Old Trafford. Liðin gerðu markalaust jafntefli í Mílanó og United fór áfram. Lið Jose Mourinho vann síðast leik á móti Alex Ferguson þegar Chelsea vann 1-0 sigur á Manchester United í úrslitaleik enska bikarsins 2007 en Didier Drogba skoraði sigurmarkið á 116. mínútu. Jose Mourinho fagnaði síðast sigri á Old Trafford 10. maí 2005 þegar Chelsea vann 3-1 sigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. Eiður Smári Guðjohnsen skoraði annað mark Chelsea í leiknum og kom liðinu þá í 2-1. Ruud Van Nistelrooy kom United í 1-0 á 8. mínútu, Tiago jafnaði fyrir Chelsea á 16. mínútu, Eiður Smári skoraði á 61. mínútu og Joe Cole innsiglaði sigurinn á 82. mínútu.Tölur úr leikjum liða Mourinho og Ferguson: Sigrar liða Mourinho - 6 Jafntefli - 6 Sigrar liða Ferguson - 6 Mörk liða Mourinho - 16 Mörk liða Ferguson - 13Sundurliðað: Mourinho með Porto : 1 sigur - 1 jafntefli - 0 töp, Markatala: 3-2 Mourinho með Chelsea: 5 sigrar - 3 jafntefli - 2 töp, Markatala: 12-8 Mourinho með Inter: 0 sigrar - 1 jafntefli - 1 tap, Markatala: 0-2 Mourinho með Real: 0 sigrar - 1 jafntefli - 0 töp, Markatala: 1-1
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug Körfubolti „Ég skulda tannlækninum afsökunarbeiðni“ Sport Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Uppgjörið: Aserbaísjan - Ísland 0-2 | Öruggur sigur og úrslitaleikur framundan Fótbolti Ronaldo sá rautt og óð reiður til Heimis Fótbolti Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Golf Uppgjör: Valur - Álftanes 92-80 | Hökkuðu gestina í sig án Kristófers Körfubolti Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Fótbolti Frakkar á HM og Íslandi dugar jafntefli Fótbolti Ronaldo svaraði Heimi og sagði hann sniðugan Fótbolti Fleiri fréttir Haaland sótti sjötíu hamborgara fyrir HM-farana Holland getur fagnað HM-sæti en Þýskaland þarf stig Króatar á HM en draumur Færeyja úti Afar óvænt tap þegar Finnar hylltu goðsögn Hjammi með mikla reynslu: „Kannski ekkert sérstakt í tuttugu tilraunum“ Rosenörn yfirgefur FH Taylor dæmir úrslitaleikinn í Varsjá Mikil spenna í Færeyjum enda HM-sætið enn möguleiki Montiel til KA Marta getur aftur unnið verðlaunin sem voru nefnd eftir henni Kominn í hóp þeirra fáu sem hafa verið heilan bílprófsaldur í landsliðinu Jafnaði við Arnór og Ríkharð á markalistanum Ronaldo gæti endað í leikbanni á HM næsta sumar Frændinn mætti með egg og gerði allt vitlaust „Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum með augnaráð sem hefði getað drepið“ Gaman í íslenska klefanum eftir leik Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Eggert Aron mætir fyrir úrslitaleikinn í Póllandi Skytturnar héldu fullkomnu flugi Englands áfram Frakkar á HM og Íslandi dugar jafntefli Ronaldo sá rautt og óð reiður til Heimis Sjáðu mörk ungu strákanna okkar Mætti á völlinn með jólamynd af Stefáni Teiti og frú „Ætla ekki að horfa oft á seinni hálfleikinn til að skemmta mér“ „Það var kominn tími til að ég myndi skora eitt mark“ „Mikill heiður fyrir mig og mína fjölskyldu“ „Sagði við Albert að ég ætlaði að reyna að finna hann eins mikið og ég gat“ Uppgjörið: Aserbaísjan - Ísland 0-2 | Öruggur sigur og úrslitaleikur framundan Haaland verður á HM og langri bið Noregs lýkur Sjá meira